Gömul kona leiðir unga menn í gildru

Guðrún Jónsdóttir á Stígamótum vill að ungir knattspyrnustrákar tali opinberlega um nauðganir.

Þetta er gildra.

Ef fótboltastrákar taka til við að ræða nauðganir játa þeir aðild að því sem Guðrún kallar ,,nauðgunarmenningu". 

En það er ekki til nein ,,nauðgunarmenning". Orðið er hugarfóstur Guðrúnar og öfgafemínista.

Sem betur fer eru þeir fáir sem nauðga. Þeir hafa ekki með sér félagsskap, svo vitað sé, og eru ekki afmarkaður minnihlutahópur sem tileinkar sér siði og háttu er mætti kallast menning.

Guðrún vill að saklausir piltar taki þátt í fantasíu eldri konu. Tilboðið er ekki sett fram af góðum hug heldur lúmsk tilraun að fá fram játningu ungra manna að þeir séu siðlausir og illa innrættir.

Gangi piltarnir í gildruna eru þeir orðnir meðlimir í fantasíuklúbbi Guðrúnar og öfgafemínista. Klúbburinn hefur öll einkenni sértrúarsafnaðar, með kreddur og fordóma. Guðrún segir að safnaðarmeðlimir ,,þurfa að játa það að þeir geti með engu móti fullyrt að allir séu þeir með hreinan skjöld." Menn eiga sem sagt að leita að syndinni, bæði hjá sjálfum sér og öðrum. Stígamót selja syndugum aflátsbréf á nokkrar milljónir stykkið.

Strákarnir okkar gerðu vel í því að afþakka tilboð Guðrúnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Eva mætt með eplið einn ganginn enn. 

Ragnhildur Kolka, 2.9.2021 kl. 07:27

2 Smámynd: Kristján G. Arngrímsson

Öfgafemínismi ætti að vera þér heimavöllur, Páll, sjálfum öfgasinnanum. Og við því búið að þér finnist ekkert að marka "gamla konu". Ekki að spyrja að fordómunum í þér.

Kristján G. Arngrímsson, 2.9.2021 kl. 08:36

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Tek undir hvert orð. Vil fá að bæta við í þessu samhengi.

Öfga-femínismi Marxismans, er nauðgunarklúbbur róttækrar félagshyggju Franfurt skólans; Það að umsnúa velsæmi góðrar menningar yfir í afstyrmi umsnúnings og skrumskælingar.

Marxisminn hefur óheftur unnið að niðurrifi vestrænnar menningar allar götur síðan á sjötta áratug síðustu aldar með skelfilegum og vel þekktum afleiðingum.

Guðjón E. Hreinberg, 2.9.2021 kl. 11:54

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Afsakið (ég vélrita of hratt og yfirles hraðar): Frankfurt skólans

Guðjón E. Hreinberg, 2.9.2021 kl. 11:55

5 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Það kemur auðvitað ekki á óvart að sjá höfund og hans meðreiðarmeyju hér hamast á því sem talað er um sem þróun.

Allt alvöru íhaldsfólk, sbr höfund og frú Kolku hér er auðvitað á mótið öllum breytingum og bætingu samfélags, þó svo að í ranni höfundar kunni að leynast honum betri vitund og viska.

Auðvitað vill þetta sama íhaldsfólk viðhalda að hér eigi ekki að bjóða mögulegum gerendum að koma fram með sín mál til að leysa mögulega sína eigin sálarkreppu og örugglega þess sem varð fyrir ódæðinu.

Neibbs. Það vil ekki höfundur og hans slekti.

Höfum káfið, athugssemdirnar, nauðganir og aðra óáran áfram í  skúffu. Höfum þetta eins og það hefur alltaf verið. 

Fylgjum höfundi, meyjum hans og sveinum í kreddunum og fordómunum.

Svei því bæði aftan og framan.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 2.9.2021 kl. 12:01

6 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Íhald segir þú Sigfús. Ekkert er nýtt undir sólinni. Aðferðir og hneykslunargirni öfgafemínista minnir mjög á afstöðu þeirra sem brenndu nornir á báli á miðöldum. 

 

Rétt eins og Covid-19 var sérhannað af demókrötum og fjölmenningarelítunni til að koma Donald Trump frá, eyðileggja fyrir Brexit-fólki, osfv, sem sagt leggja í rúst frelsunarhreyfingu Vesturlanda einu sinni enn, eins og var gert af sömu elítu 2008 með tilbúinni kreppu ofanfrá, þannig eru atburðarásir hannaðar til að sverta karlmenn og drengi sérstaklega, alla sem tilheyra feðraveldi, osfv, samrýmast ekki því sem búið er að telja vinstrisinnum trú um.

 

Þessi atburðarás gegn vestrænni menningu er ekki ungum femínistum til hagsbóta. Femínistar eru fórnarlömb í þessu. 

 

Rökþrota vinstrimenn með Sovétríkjahræið á bakinu halda dauðahaldi í að allir í feðraveldinu hafi verið vondir, það er bara alrangt. 

 

Sterkasta spilið hjá Höggorminum í aldingarðinum Eden var að segja að Eva væri merkilegri en guð og það sama gerist enn í okkar menningu. 

 

Geðsjúkdómar, sálarkreppur, 90% af öllum líkamlegum og andlegum sjúkdómum eru uppfinningar sósíalista, kommúnista, Satans, og svo koma þessir sömu aðilar með aðferðir til að lækna eigin sköpunarverk!!! 

Ingólfur Sigurðsson, 2.9.2021 kl. 14:13

7 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Ingólfur, takk fyrir málefnalega innlegg....

Sigfús Ómar Höskuldsson, 2.9.2021 kl. 20:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband