Mótmælendur tryggja endurkjör Trump

Ofbeldisalda síðustu daga í Bandaríkjunum yfirskyggði kórónuveiruna sem var Trump forseta hættuleg. 

Tveir blökkumenn, Larry Elder og Ben Carson, ráðherra ríkisstjórnar Trump, ræddu ofbeldið og hversu tilgangslaust það er. Í lok samtalsins er spurt um kórónuveiruna sem hvarf. Carson hlær og segir það megi mótmæla en ekki fara í kirkju.

Trump gerði það sem allir stjórnmálamenn gera í síkvikri pólitík. Hann sá tækifæri. Með biblíu í hendi og brennda kirkju sem sviðsmynd talaði forsetinn til fólksins sem tryggir honum endurkjör í nóvember.


mbl.is Ummæli forsetans sögð hættuleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Einar Hansen

Ég lít á þetta, sem er að gerast þar vestra ... og ég verð að segja að mér finnst engin ástæða til að tala um kynþáttahatur. Að segja það kynþáttahatur, að vera illa við svona óþverra ... er ekki til að hlægja að því. Heldur til þess að fyllast örvæntingar yfir því, hversu lágt sumt fólka ... meðal annars á Íslandi vill leggja sig í þessu sambandi.

Að "flytja inn" þennan skríl, er til skammar fyrir allar þjóðir vestur Evrópu.

Örn Einar Hansen, 5.6.2020 kl. 14:06

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Það eru til þeir sem nýta hörmungar sér og sínum málstað til framdráttar. Mótmælin og upphlaupin þar vestra og víðar, meira að segja hér á landi, eru ekkert annað en tilraun til að valda sundrungu og eyðileggja þjóðfélögin þar sem upphlaupin eiga sér stað.

Ég heyrði ungan mann segja frá því, hann eiginlega missti það út úr sér, að George Soros borgaði þeim sem vildu standa að mótmælum.

Leynt og ljóst hefur þessi maður staðið fyrir því að grafa undan stjórnvöldum og heilu þjóðfélögunum. Hann leggur óhemju fé í No Border samtökin, sem nokkrir kratar hér á landi aðhyllast og eru hluti af, í þeim tilgangi að eyðileggja þjóðfélögin. Stefna hans og margra annarra ríkra karla og kvenna er að koma á einni alheims stjórn og nota Sameinuðu þjóðirnar til að ná fram áformum sínum. Eitt af markmiðum þessa hóps er að fækka fólki á jörðinni verulega eða um nokkra milljarða. Ein aðferðin sem nota á eru bólusetningar, en Bill Gates vill að öll heimsbyggðin, ALLIR, verði bólusettir. Bill, þótt ríkur sé, er ekki menntaður á þessu sviði, reyndar lauk hann aldrei háskólaprófi, en hann virðist vita allt um bólusetningar og er búinn að vera að tala um þær í mörg ár. Nú sér hann sér leik á borði og vill bólusetja alla og er jafnvel tilbúinn að borga fyrir það. Slíkum manni get ég ekki treyst.

Tómas Ibsen Halldórsson, 5.6.2020 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband