Nató er ekki meðalhóf, því miður

Björn Bjarnason segir Nató stunda meðalhóf. Betur að svo væri. Nató hefði átt að leggja niður þegar Sovétríkin og Varsjárbandalagið gáfu upp öndina fyrir bráðum 30 árum.

Nató var stofnað til að verja Vestur-Evrópu fyrir kommúnisma í kalda stríðinu. Engin hætta er lengur af kommúnisma. Skýrleiksmenn eins og George Kennan og Walter Lippmann sáu fyrir að Nató ætti að hætta starfsemi þegar hættan af kommúnisma liði hjá, er rifjað upp í tímaritinu Nation.

Hernaðarbandalag án tilgangs leitar að óvini, býr hann til ef því er að skipta. Nató bjó til Rússland sem andstæðing með því að hlaða niður herstöðvum á öllum vesturlandamærum Rússlands. Það er ekki meðalhóf.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er hægt að tala um að rússa-grýlan sé dauð

þegar að þeir eiga 7290 kjarnorkuflaugar?

https://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2022928/

Jón Þórhallsson, 15.7.2018 kl. 16:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband