RÚV lýgur blákalt - Helgi Seljan þarf að útskýra

Í fréttahönnun RÚV dagana fyrir Kastljósþáttinn á sunnudag, sem var startskotið fyrir fjöldamótmæli á mánudag, þverbraut RÚV ítrekað viðurkenndar siðareglur fjölmiðla. Í viðtengdir frétt á mbl.is segir

Full­yrt var að skrif­stofa Alþing­is hafi staðfest þann skiln­ing á regl­un­um. Helgi Selj­an end­ur­tók þá full­yrðingu í viðtali við fjár­málaráðherra í Kast­ljósi í gær­kvöldi. Þessu hafn­ar skrif­stofu­stjóri Alþing­is al­ger­lega.

„Það er alrangt. Ég tók það sér­stak­lega fram við frétta­mann frá Rík­is­út­varp­inu að ég hefði enga heim­ild til þess að segja hvað væri rétt eða rangt í þess­um efn­um. For­seti Alþing­is hefði ekki held­ur rétt til þess og for­sæt­is­nefnd ekki held­ur.

Helgi Seljan fréttamaður hlýtur að gera grein fyrir þessum vinnubrögðum. Að ljúga upp á heimildamenn er alvarlegt mál og leiðir til aðgerða á heiðarlegum fjölmiðlum.


mbl.is Staðfesti ekki skilning Kastljóss á hagsmunaskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hvenær hefur Helgi Seljan nokkurn tímann kunnað að skammast sín????

Jóhann Elíasson, 6.4.2016 kl. 15:32

2 Smámynd: Jón Ragnarsson

Þessi hálmstrá eru orðin ansi vandræðaleg. 

Jón Ragnarsson, 6.4.2016 kl. 16:16

3 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

það skiftir í raun ekki máli hvað hann sagði eða ekki sagði, það eru í dag engin viðurlög við nokkrum sköpuðum hlutum og allt gert, allt látið flakka.

Eyjólfur Jónsson, 6.4.2016 kl. 17:15

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Held að það væru nú fáar fréttir sagðar  ef farið væri eftir hugmyndafræðinni sem hér hfur birst á síðustu dögum á þessu bloggi! Það mætti ekki koma með óvæntar spurningar, það væri refsivert ef einhver mistúlkaði einhverjar upplýsinar sem hann notaði í spurningar sína. Það yrði að leita samþykkis viðmælenda fyrir öllu sem haft væri eftir honum. Eins mætti ekki byggja frétt á efni sem komið er til með leka því það eru stolin gögn.. Og þá væntanlega ekki eftir ónafngreindum aðilum.  Væri þá ekki bara rétt að loka þessu fréttastofum og stofna þar Bónusbúðir?  Því skv þessu má ekki spyrja neinn nema að senda honum fyrirspurnir og birta svörin á netinu á athugasemda.

Magnús Helgi Björgvinsson, 6.4.2016 kl. 17:49

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

RÚV krefur menn um heiðarleg vinnubrögð og álasar þeim sem þeir halda að viðhafi þau ekki. Þegar kemur að starfsmönnum RÚV þá er allt leyfilegt,engin eftirköst,mönnum hælt í bak og fyrir. Er von að það fyrirtæki sé rúið trausti? Svo erum við þvinguð til að greiða laun þessara afglapa.

Leggja ber RÚV niður, loka þeirri sjoppu í eitt skipti fyrir öll.

Tómas Ibsen Halldórsson, 6.4.2016 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband