ESB-umsóknin: samkeppni um merkingarleysi

Nafn Íslands á lista yfir umsóknarríki á einhverjum vefsíðum Evrópusambandsins „hef­ur enga merk­ingu ef það ger­ist. Þá verður það bara leiðrétt,“ segir talsmaður ESB á Íslandi.

Merkingarleysi er rétt eftirmæli ESB-umsóknar Samfylkingar frá 16. júlí 2009. Umsóknin var án umboðs þjóðarinnar og aðeins samþykkt á alþingi með beinum svikum þingmanna Vg, sem nýverið höfðu fengið kosningu sem ESB-andstæðingar.

Umsóknin átti að búa til ESB-ríki úr Íslandi með tilskipun ofan frá. Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. ætlaði að hafa vit fyrir þjóðinni líkt og einvaldsherrar fyrri tíma sem þáðu vald sitt frá guði almáttugum en ekki almenningi.

Þjóðin hafnaði forræði vinstrimanna. Þjóðin fékk ekki að kjósa um ESB-umsóknina en hún nýtti sér tækifærið og útrýmdi síðustu leifunum af trúverðugleika umsóknarinnar með því að stúta Icesave-samningum Jóhönnustjórnarinnar í tvígang í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Merkingarleysi umsóknarinnar er auglýst með tækifærismennsku ESB-sinna. Alþjóð veit að utanríkisráðherra þáverandi og ábekingur umsóknarinnar, Össur Skarphéðinsson, er með þá einu sannfæringu sem kaupir honum völd hverju sinni. Þeir fáu hægrimenn sem lögðu lag sitt við flandur Össurar gerðu það til að skapa sér pólitíska stöðu en ekki af hugsjón um framtíð lands og þjóðar. Nýr hægripólitískur flokkur, Viðreisn, er jafn dauður og umsóknin.

Umræðan um merkingarlausu ESB-umsóknina sýndi enn og aftur að framandi útlenskar hugmyndir (kommúnismi, fasismi, esb-ismi, múslímismi) skjóta ekki rótum í íslenskum jarðvegi. Til að slíkur innflutningur fái hljómgrunn þarf hann að höfða til skyldleika við sjónarmið, sem fyrir eru. Femínismi, til dæmis, náði hér nokkru flugi enda var hann fléttaður inn í hundrað ára jafnréttisbaráttu kvenna.

ESB-umsókninni var haldið á lífi jafn lengi og raun ber vitni með stanslausum áróðri um að Ísland væri ónýtt. Krónan var ónýt, fullveldið sömuleiðis, stjórnmálakerfið einnig og auðvitað efnahagslífið eins og það lagði sig.

Að ESB-sinnar trúi að merkingarlaus umsókn studd hatri á öllu íslensku fái framgang meðal þjóðarinnar segir heilmikla sögu um þá sjálfa.

 

 


mbl.is Ísland fjarlægt smám saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband