Reykjavíkurlýðveldi Samfylkingar

Breiðholtið yrði ekki með í Reykjavíkurlýðveldi Samfylkingar, landamærin væru Elliðaárnar. Úthverfin eiga lítið sameiginlegt með samfylkingarfólki í 101.

Reykjavíkurlýðveldið yrði algerlega ósjálfbært, þyrfti að flytja alla nauðsynjavöru frá Íslandi. Flugsamgöngur við útlönd færu í gegnum Keflavík, enda yrði Vatnsmýrin tekin undir byggingarland. Þá væri samfylkingarlýðveldið háð landsbyggðinni um raforku - gamla rafstöðin tilheyrir Breiðholti.

Þjóðardrykkur nýja lýðveldisins yrði café latté og þjóðsöngurinn Litlir kassar á lækjarbakka.

 


mbl.is Viltu að Reykjavík verði borgríki?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svona bara til upplýsingar þá var þetta hugmynd eða tillaga sem lögð var fram af Hilm­ari Sig­urðssyni  full­trúi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Stjórn­kerf­is- og lýðræðisráði Reykja­vík­ur, Hann lagið þessa tillögu fram í framhaldi af því að Höskulur reyf út úr defnd frumvarp að lögum um að Reykjavík réði ekki lengur hluta af landi sem borgin á þó þarna í Vatnsmýri! Þ.e. að Ríkið er búið að taka af Reykvíkingum nokkra tugi hektara með lögum.

Held að ef að Reykjavíkurflugvöllur verður þarna áfram verði að banna sportflugmönnum að nota völlinn. Rífa öll þessi gömlu skýli og láta þá flytja sig á einhvern völl sem þeir byggja sjálfir. Banna að þarna lendi þotur og eins ferjuflug. Það er óþolandi háfaði af þessum litlu rellum allar helgar þarna niður í bæ og eins af þessum einkaþotum. Ef þarna væri bara farþegaflug og sjúkraflug þá væri kannski hægt að lifa með þessu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.6.2015 kl. 00:17

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

P.s. hef kynnt mér málið og Samfylking hefur ekkert ályktað um Borgríki eða að Reykjavík kjósi um að kljúfa sig fra landsbyggðinni! Þetta var bara hugmynd Hilmars.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.6.2015 kl. 00:19

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Mig minnir að textinn "Litlir kassar á Lækjarbakka" sé eftir Þórarinn heitinn Guðnason lækni.Sé ekki að hans sé getið á You tube.--Pólitískir flóttamenn fengju væntanlega hæli á Íslandi!? 

Helga Kristjánsdóttir, 2.6.2015 kl. 02:01

4 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Magnús

Þú hefur gleymt að kynna þér egnarheimildirnar þarna

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.6.2015 kl. 02:36

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er bara dæmigert þegar menn missa stjórn á skapi sínu og bulla, ekki voða gott fyrir menn sem á að taka mark á. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.6.2015 kl. 09:40

6 Smámynd: Steinarr Kr.

Ég bý í aðflugsleiðinni á austur/vestur brautina.  Get ekki sagt að ég verði var við þennan "háfaða" sem Magnús kvartar undan.

Að öðru leiti er þessi tillaga í ætt við annað frá samfóistum tilgangslaus tímaeyðsla.

Steinarr Kr. , 2.6.2015 kl. 13:12

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þegar Ingibjörg Sólrún hæelt atkvæðagreiðslu um flugvöllinn fóru sjónvarpsmenn í leiðangur í húsin sem standa næst flugvellinum sem og í aðflugsstefnu hans og tóku tali íbúana þar í þeirri von að í næsta nágrenni flugvallarins leyndust h0rðustu andstæðingar flugvallarins sökum hins stórkostlega ónæðis. Þeim varð ekki að ísk sinni því allir vildu hafa flugvöllinn áfram í túngarði sínum og töluðu um að þá sjaldan eitthvað heyrðist í flugvélum þá væri það einungis notsalegt - heimilislegt.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.6.2015 kl. 13:20

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þær fljúga yfir íbúðabyggð á Kársnesi og undirstrika líf á fullri ferð og er/var bara alltaf notalegt.

Helga Kristjánsdóttir, 2.6.2015 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband