Föstudagur, 23. apríl 2021
Kínaveiran og tvær frásagnir íslenskar
Tvær meginfrásagnir eru af farsóttarvörnum á Íslandi. Sú fyrri er að yfirvöldum, þ.e. þríeykinu og ríkisstjórn, hafi tekist vel upp. Íslendingar urðu ekki fyrir stórfelldum skerðingum á daglegu lífi sínu vegna sóttvarna samtímis sem dauðsföllum var haldið í lágmarki og heilbrigðiskerfinu var ekki riðið á slig. Íslendingar koma hvað best út í alþjóðlegum samanburði á viðbrögðum stjórnvalda við Kínaveirunni.
Seinni frásögnin um sóttvarnir á Fróni er öfgaútgáfan. Undirflokkar hennar eru tveir. Inga Sæland í Flokki fólksins og nærsveitarmenn, t.d. sumir í Samfylkingu, vildu loka landinu ótímabundið á meðan heimsfaraldurinn gengi yfir. Seinni undirflokkurinn á sér talsmenn meðal gúlag-lögfræðinga og í Sjálfstæðisflokknum er telja stórfelld mannréttindabrot að skikka fólk í sóttkví.
Fyrri frásögnin er rétt. Sóttvarnir á Íslandi voru hóflegar en árangursríkar. Seinni frásögnin er röng, kemur ekki heim og saman við veruleikann.
En öll eru þessi mál ofurviðkvæm, einkum á kosningaári. Þess vegna eru hertar sóttvarnir á Keflavíkurflugvelli ekki ræddar á ríkisstjórnarfundi. Sem er pínulítið fyndið, satt best að segja, og til marks um að einhverjir pólitískir hópar hér á landi halda enn dauðahaldi í annan hvorn undirflokk öfgafrásagnarinnar.
Hertar aðgerðir ekki ræddar á ríkisstjórnarfundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 23. apríl 2021
Trausti veit, Biden ekki
Meðalhiti á Íslandi síðustu 200 ár hefur hækkað um 0,8 gráður á öld, segir Trausti Jónsson veðurfræðingur og byggir á tiltækum gögnum.
Hækkun á meðalhita um 1,6 gráðu á 200 ára tímabili er engin hamfarahlýnun heldur eðlileg náttúruleg sveifla.
Á þessu tveggja alda tímabili eru styttri skeið þar sem hiti fer ýmist hækkandi eða lækkar. Svona svipað og veðrið, sem breytist frá degi til dags. Trausti skrifar: ,,Hiti á kuldaskeiðinu 1965 til 1995 var lengst af lægri heldur enn hann var á hlýskeiðum 19.aldarinnar [við kölluðum það kuldaskeið sem nítjándualdarmenn hefðu kallað hlýskeið]."
Biden Bandaríkjaforseti og heimselítan vilja telja okkur trú um að náttúrulegar sveiflur á hitafari séu af mannavöldum. Biden og heimselítan eru fangar trúarbragða. Trausti talar vísindi.
Losun gróðurhúsalofttegunda helminguð fyrir 2030 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)