Föstudagur, 18. júní 2010
Sjálfstæðisflokkurinn í forystukreppu
Afleiðing af hikandi og höktandi uppgjöri formanns Sjálfstæðisflokksins við auðrónadeildina er óðum að koma í ljós. Eftirspurn eftir næst æðsta embætti flokksins er nær engin. Auðrónadeildin sem heldur hlífiskildi yfir Guðlaugi Þ. Þórðarsyni ofurstyrkþega og verkfæri auðmanna er með yfirhöndina í flokknum.
Bjarni Benediktsson formaður fer undan í flæmingi og treystir sér ekki til að takast á við kröfu um uppgjör við útrásararfleifðina. Formaðurinn lætur sér vel líka að fáeinar eftirlegukindur frá 2007 haldi flokknum í heljargreipum. Kómískir tilburðir þessa hóps til að hnykla vöðvana birtust meðal annars í því að gera Árna Þór Sigfússon fjárfesti og bæjarstjóra Reykjanesbæjar að formannskandídat. Hugmyndin toppaði forsetaframboðspælingar Ámunda umba hér um árið.
Forystukreppa í móðurflokki íslenskra stjórnmála veit á umbrot á hægri kanti stjórnmálanna.
![]() |
Ætlar ekki í varaformanninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 18. júní 2010
Krónan - Evran: 3-0
Launamenn í Grikklandi, Spáni og Írlandi búa við evru og beinar launalækkanir. Stjórnvöld í þessum löndum eiga ekki annan kost en að segja verklýðshreyfingunni stríð á hendur og breyta launatöxtum til lækkunar. Líkleg afleiðing er verðhjöðnun í þessum efnahagskerfinu og atvinnuleysi á annan tug prósenta.
Hér á Íslandi lækkar gengi krónunnar sem jafnar byrðar vegna efnahagshrunsins. Ríkir Grikkir, Spánverjar og Írar geta flutt evrurnar sínar í öruggt skjól og komið sér undan því að borga sinn hluta í endurreisninni. Hér á Íslandi sér blessuð krónan til þess að allir taki þátt - gjaldeyrishöftin eru til þess.
Sérstakur krónubónus er að Hæstiréttur dæmdi myntkörfulán ólögleg. Krónan er þjóðargersemi.
![]() |
Funda um gengistryggð lán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 18. júní 2010
Dómur Hæstaréttar eykur líkur á stjórnarskiptum
Dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána er stærsta efnahagsaðgerð eftir hrun. Um 100 - 200 milljarðar króna munu færast frá lánveitendum til lántaka. Eftir þessa efnahagsaðgerð lækkar hlutfall íslenskra heimila á vonarvöl og pólitískur þrýstingur á ,,björgum heimilunum" hverfur.
Skjaldborg heimilanna er helsta slagorð ríkisstjórnarinnar og meginástaæða fyrir tilveru hennar. Þegar Hæstiréttur er búinn að bjarga heimilunum hverfur tilverugrundvöllur ríkisstjórnarinnar.
Málin sem komast í forgrunn eru þessi: ESB-umsóknin, niðurskurður í opinberum rekstri, stjórnkerfisbreyting Jóhönnu Sig., og virkjanamál. Allt eru þetta mál sem kljúfa ríkisstjórnina. Krafan um nýjar kosningar verður háværari og líkur á að þær fari fram hérna megin næstu áramóta.
![]() |
Lausir endar þrátt fyrir dóm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 17. júní 2010
Endurreisnin og ESB
Össur segir endurreisnina og aðildarferli að ESB haldast í hendur. Samkvæmt því gerir hann ráð fyrir að endurreisnin muni taka þrjú til fimm ár enda er það tímarammi ferlisins. Hann nefnir líka evruna en Ísland á raunhæfan möguleika að taka upp evru í kringum 2020 - ef evran verður enn til sem mynt.
Endurreisn Íslands og aðildarferli að ESB er innbyrðis mótsagnir. Endurreisn felur í sér að reisa eitthvað við sem áður var, t.d. þjóðfélag jöfnuðar, sjálfsbjargar og ábyrgðar. Aðildarferli í ESB snýst um að gefa frá okkur forræði eigin mála og flytja úr landi hluta stjórnkerfisins. Við höfum reynt það áður og það gafst ekki vel.
Einu ber þó að halda til haga og fagna sérstaklega á þessum tímamótum. Andstæðingar aðildar ESB gætu ekki hafa valið betri fyrirsvarsmann fyrir aðildarumsókn en Össur Skarphéðinsson.
![]() |
Heilladagur fyrir Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 17. júní 2010
Dýrafjörður og saumaklúbburinn í Brussel
Forsætisráðherra sagði í hátíðarávarpi Jón Sigurðsson þjóðfrelsismann fæddan við Dýrafjörð og eru það ný tíðindi þorra Íslendinga sem þóttust vita Jón í heim borinn á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. fær samþykkt á þjóðhátíðardag okkar að viðræður skulu hafnar um aðild að Evrópusambandinu.
Með mannvitsbrekku í stjórnarráðinu er komin skýring á því hvers vegna við erum að sækja um félagsskap í upplausn. Jóhanna Sig. heldur Evrópusambandið saumaklúbb sem býður í partý með ljósmyndatöku, ókeypis þjónustu túlka og alles.
Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar, segir í sögu sem Jóhanna Sig. þekkir ekki. Skilaboð sögunnar eru að forsætisráðherra kemst ekki heill úr leiðangrinum sem er án fyrirheits.
![]() |
Samþykkt að hefja viðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 17. júní 2010
ESB-elítan í eyðimerkurgöngu
Samfylkingin fékk við síðustu þingkosningar aðstoð frá þeim hópi sjálfstæðismanna sem fylgjandi eru aðild Íslands að Evrópusambandinu. Eina kosningamál Samfylkingarinnar var ESB-aðild. Flokkurinn fékk innan við 30 prósent atkvæða.
Almennir flokksmenn Samfylkingarinnar hafa sáralítinn áhuga á Evrópusambandinu. Þegar flokkurinn efndi til fundarherferðar um ESB fyrir nokkrum árum var sáralítil mæting og í atkvæðagreiðslu innan flokksins tók þriðjungur félagsmanna þátt.
Flokksforystan í Samfylkingunni tjaldar ESB-málinu af því hún hefur ekkert annað málefni. Til stuðnings forystunni eru nokkrir álitsgjafar úti í þjóðfélaginu og til viðbótar fámennur hópur sérfræðinga sem vill breikka atvinnumöguleika sína.
ESB-elítan fékk með svikum VG því framgengt að Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu.
![]() |
Ísland uppfyllir pólitísk skilyrði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 17. júní 2010
Samfylkingin skínandi dæmi um hroka
Ingibjörg Sólrún fyrrum formaður Samfylkingar sagði í vetur að enginn pólitískt forysta væri fyrir ESB-umsókn Íslands. Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, undirstrikar forystuleysið með því að stöðugt vísa í þingsályktun alþingis frá 16. júlí 2009 sem leyfði ríkistjórninni að sækja um aðild.
Þingmenn úr öllum flokkum utan Samfylkingar hafa lagt fram tillögu að þingsályktun um að Ísland dragi umsóknina tilbaka. Það er í samræmi við margkannaðan vilja þjóðarinnar.
Samfylkingin er vinsamlega beðin að láta Evrópusambandið vita að það sé ekki heppilegt við núverandi kringumstæður að gera Ísland að formlegu umsóknarríki. Og hvað gerir Samfylkingin? Jú, hún forherðist. Össur Skarphéðinsson er búinn að liggja í vini sínum Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar og fá hann til að setja Ísland á matseðil leiðtoga Evrópusambandsins.
Óbornar kynslóðir munu þakka Össuri og Samfylkingunni þessa þjóðhátíðargjöf.
![]() |
Ráðherra biðji ESB að hinkra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 16. júní 2010
Hæstiréttur bjargar heimilunum, krónan landinu
Dómur Hæstaréttar í dag bjargar mörgum heimilum og gerir ríkisstjórnina óþarfa. Dómurinn staðfestir einnig að útrásarvæðing bankakerfisins var lögleysa. Þriðja atriðið sem dómurinn staðfestir er samt það mikilvægasta. Íslenska krónan er bjargvættur efnahagslífsins.
Án krónunnar væri ekki hægt að fella gengið til að auka samkeppnishæfi landsins og tilraunir til að binda krónulán við erlenda mynt er ólögmætt.
Óvarkárir lánveitendur sitja uppi með sárt ennið eftir þennan dóm og er það maklegt.
![]() |
Áhrif dómsins að mestu til góðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 16. júní 2010
Ríkisstjórnin í minnihluta á alþingi og fallin
Þrír þingmenn VG gefa út yfirlýsingu um að þeir séu á móti stjórnarráðsfrumvarpi Jóhönnu Sig. forsætisráðherra og þar með er stjórnin fallin. Ríkisstjórnin er með 34 þingmenn af 63 á alþingi. Þegar þrír stjórnarþingmenn eru á öndverðum meiði við stjórnina er hún komin í minnihluta.
Vönduð yfirlýsing þremenninga um það hvers vegna þeir styðja ekki frumvarp forsætisráðherra sýnir að þeir eru vel meðvitaðir um tímamótin. Í yfirlýsingunni er kröftug pólitík.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. er fallin. Aðeins á eftir að gefa út dánarvottorðið.
![]() |
Eru andvígir frumvarpi Jóhönnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 16. júní 2010
ESB-umsóknin brennur í báða enda
Þjóðverjar reyna ítrekað að bjarga íslenskum stjórnvöldum frá eigin glópsku. Þegar þýsk þingmannanefnd kom í heimsókn í vor hélt hún blaðamannafund þar sem á það var bent að Ísland mynd borga með sér til ESB. Þar með var búðarlokurökum Samfylkingar um meintan gróða af aðild kollvarpað.
Þjóðverjar hafa öðrum betur kynnt sér stöðu mála hér á landi. Þeir vita að Samfylkingin er einangruð í málinu og um 70 prósent þjóðarinnar er á móti inngöngu.
Þegar sendiráð Þýskalands í Reykjavík setur fram skilyrði fyrir aðildarviðræðum við Ísland er á kurteisan hátt reynt að koma vitinu fyrir íslenska utanríkisráðherrann.
Auðvitað mun Össur ekki skilja fínni blæbrigði diplómatíunnar.
![]() |
Vilja ESB-málið á dagskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)