Þriðjudagur, 17. janúar 2023
Þriðja heimsstríð, tapi Úkraína
Tapi Úkraína stríðinu við Rússland gæti það leitt til þriðju heimsstyrjaldarinnar, segir Morawiecki forsætisráherra Póllands. Sá pólski er í Þýskalandsheimssókn og hvetur þýsku ríkisstjórnina að senda austur öll þau vopn sem stjórnin í Kænugarði æskir.
Pólland er herskátt í Úkraínustríðinu. Sögulegar ástæður ráða nokkru en einnig hrá valdapólitík. Pólland var lengi stuðpúði milli Þýskalands og mátti þola búsifjar, síðast í seinna stríði. Veikt Rússland, að ekki sé sagt sigrað, er á óskalista pólskra stjórnvalda. Það styrkir áhrifavald Póllands í Austur-Evrópu. Þá eru pólskir grunaðir um að ætla sér úkraínsk landamærahéruð er áður tilheyrðu Póllandi.
Stoltenberg framkvæmdastjóri Nató talar á sömu nótum og pólski forsætisráðherrann, þótt ekki slengi hann fram heimsendaófriði.
Hvernig á að skilja orðræðuna um þriðju heimsstyrjöldina? Í einn stað hótun að Nató grípi í taumana fari Úkraína hallok á vígvellinum. Í annan stað gerir pólski forsætisráðherrann Rússum upp þá ætlun að hefja þriðju heimsstyrjöldina eftir að hafa sigrað Úkraínu. Fremur langsótt.
Starfsystir Morawiecki, Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands sagði í Íslandsheimssókn fyrir tveim mánuðum að lykilatriði væri að Úkraína ynni stríðið.
Ráðamenn á vesturlöndum, s.s. Morawiecki og Sanna Marin, telja heimsfriðinn í hættu ef nágrannaerjur tveggja slavneskra þjóða fær ekki niðurstöðu sem er Washington og Brussel að skapi.
Fyrir rúmri öld, sumarið 1914, stóðu ráðamenn í Evrópu í þeim sporum að velja á milli friðar og ófriðar. Þeir kusu átök og úr varð fyrri heimsstyrjöld. Á þeim tíma var almenningur vítt og breitt um álfuna hlynntur stríði. Í dag er almenningur fjarri því að vilja stríð. Af þeirri ástæðu berjast Nató-herir ekki á sléttum Garðaríkis. Án stuðnings almennings er hæpið að vestrænu þjóðirnar sendi heri sína a austurvígstöðvarnar.
Leiðtogar Nató-ríkja vilja aftur mannfórnir Úkraínumanna til að vesturlönd tapi ekki stríðinu. Tapi Úkraína verði efnt til þriðju heimsstyrjaldarinnar er gefið til kynna. Örvæntingin er áþreifanleg.
Þeir sem kunna skil á hernaði, t.d. þýski herforinginn Vad, fyrrum ráðgjafi Merkel kanslara, taka vara á vesturlöndum að halda áfram að fóðra ófriðinn í Garðaríki. Kannski verða það yfirmenn herja sem koma vitinu fyrir herskáa stjórnmálamenn. Áður en þriðja heimsstríð skellur á.
![]() |
Senda aukinn herbúnað til Úkraínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 16. janúar 2023
Ef glæru-kennari væri hægrimaður...
Tvær glærur frá tveim framhaldsskólum eftir tvo kennara hafa verið í fréttum fyrir að vera áróðurskenndari en svo að hæfi kennslu. Kennararnir eru á framboðslista fyrir vinstriflokka.
Hvað ef kennararnir hefðu verið hægrimenn, annar í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn en hinn fyrir Miðflokkinn, og gert glærur sem tengdu formann vinstriflokks við fjöldamorðingja annars vegar og hins vegar vistriflokk við þjóðarmorð?
Hér er tilgáta.
RÚV væri með raðfréttir um innrætingu hægrimanna í skólakerfinu. Ráðherra menntamála yrði látinn svara til saka. Sérfræðingar yrðu kallaðir til á sviði sögu, stjórnmálafræði og siðfræði til að fordæma. Aðrir miðlar s.s. Stundin og Kjarninn, nú Heimildin, kæmu í kjölfarið og legðu sitt af mörkum til að framkalla reiðibylgju.
Á alþingi myndu þingmenn vinstriflokkanna láta til sín heyra og krefjast aðgerða - sem aftur yrðu fréttir á RÚV og fylgimiðlum. Aðrir miðlar sæju sig knúna að sinna málinu með fréttaflutningi, sem þó væri ekki eins herskrár, en héldi málinu engu að síður lifandi.
Á samfélagsmiðlum yrði hamast nótt sem nýtan dag, eins og gefur að skilja.
En, sem sagt, kennararnir sem um ræðir eru vinstrimenn. Þannig er það með kennarastéttina í heild, hún er fremur til vinstri en hægri. Sama slagsíða er á fjölmiðlum.
Nærtækt er að rifja upp fréttaumræðu um kennara sem ekki voru í bandalagi vinstrimanna. Snorri í Betel var rekinn úr starfi kennara fyrir að hafa ,,ranga" skoðun á samkynhneigðum. Brottrekstur Snorra var síðar dæmdur ólöglegur.
Kristinn Sigurjónsson lét orð falla um vinnustaðamenningu, þar sem karlar og konur starfa hlið við hlið. Hann ræddi sína meiningu í lokuðum hópi á samfélagsmiðli. Sjónarmiðum Kristins var lekið í fjölmiðla og þá varð fjandinn laus. Kristinn var rekinn úr starfi sem kennari.
Hvorki Snorri né Kristinn héldu fram skoðunum sínum í skólastofunni. Þeir iðkuðu rétt sinn að hafa skoðanir á samfélagsmálum utan vinnustaðarins. Í beinu framhaldi var ræst umræðuvélin sem engu eirir. Áður en auga á festi voru tvímenningarnir atvinnulausir.
Vinstrimönnum í kennarastétt líðst töluvert meira en þeim sem ekki deila ráðandi skoðunum í skólum landsins.
![]() |
Elliði svarar rektor Menntaskólans við Sund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Sunnudagur, 15. janúar 2023
Björn hittir naglann á höfuðið
,,Það er rík tilhneiging að heimfæra menn og málefni úti í stóra heiminum hingað í afskekkta fámennið. Vandinn er hins vegar að oftast er um algjörlega ósambærilega hluti að ræða," skrifar Björn Bjarnason fyrrverandi menntamálaráðherra.
Tilefnið eru tvö dæmi um glærur í kennslu í framhaldsskólum sem taka orð og hugmyndir erlendis frá og heimfæra upp á íslenskar aðstæður. Af glærunum að dæma er Sigmundur Davíð sálufélagi Hitlers og að Sjálfstæðisflokkurinn sé fylgjandi útrýmingu kynþátta.
Til viðbótar atriðinu, sem Björn nefnir. Í síbyljuumræðu alnetsins er óskyldum hugtökum, einstaklingum og atburðum slengt saman, stundum af þeim sem vita betur en geta ekki á sér setið að slá pólitískar keilur.
Stjórnmálafræðiprófessor kemur í viðtal hjá RÚV og gerir því skóna að Sigmundur Davíð sé þjóðernissinni í einhverjum öðrum skilningi en saklausum. Tilgangurinn er að vekja grun um að flagð sé undir fögru skinni. Síbyljan tekur málið fyrir, klæðir Gróufrétt í búning staðhæfinga, og úr verður kennsluglæra.
Hugtakið þjóðernissinni hlýtur, þegar grannt er skoðað, að eiga við alla íslenska stjórnmálamenn. Þeir koma til kjósenda reglulega og segjast ætla að vinna þjóðinni gagn. Söguleg merking orðsins er aftur nátengd hugmyndastefnu í Evrópu á fyrri hluta síðustu aldar. Umræðusíbyljan gerir engan greinarmun á þessu tvennu. Guð vors lands fær sömu meðferð og Die Fahne hoch. Þjóðleg gildi og helförin verða einn og sami hluturinn.
Umræðan er eins og hún er, óróleg og hávaðasöm. Lítið við því að gera, orðið er frjálst. En það má gera kröfu til fjölmiðla að þeir starfi ekki sem fóðurstöðvar fyrir fleipur, ýkjur og ósannindi.
Það stendur upp á kennara að skilja hismið frá kjarnanum, meðhöndla ekki ýkjur og útúrsnúninga sem viðtekin sannindi. Glærurnar tvær eru vonandi fátíð afbrigði frá meginreglunni um vandaða kennslu.
Á hitt er einnig að líta að háskólar, sem mennta kennara, eru ekki jafn traustar stofnanir og þeir fyrrum voru. Hér áður mátti gefa sér að þótt nemendur væru pólitískir aðgerðasinnar var háskólanámið á fræðilegum grunni. Nú ber svo við að frá háskólum koma skoðanir að líffræðileg kyn séu ekki lengur tvö, heldur þrjú, fimm eða seytján, og að maðurinn stjórni veðurfari jarðkringlunnar.
Bábiljufræðin ku eiga sér frjóastan jarðveg í hug- og félagsvísindadeildum. Það eru deildirnar sem mennta sögu-, stjórnmálafræði- og félagsfræðikennara.
![]() |
Glæran í Versló ekki einsdæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Laugardagur, 14. janúar 2023
Nató, ásýnd og reynd
Úkraína er í reynd Nató-ríki, segir varnarmálaráðherra landsins. Í Úkraínu berjast rússneskir hermenn í reynd við Nató, segja yfirvöld í Rússlandi.
Reynd í merkingunni raunveruleiki er eitt en annað er ímyndin um reynd. Aðild Svíþjóðar og Finnlands að Nató er nær reynd raunveruleikans en aðild Úkraínu. Eina sem stendur í vegi aðildar norðurlandaþjóðanna að bandalaginu er neitun Tyrklands.
Um leið og Erdogan segir já eru Svíþjóð og Finnland orðin Nató-ríki að öllu leyti nema að forminu til. Aðeins vantar undirskriftir. Hver er ástæðan? Jú, Rússar segja að norðurlöndin tvö séu þegar Nató-ríki - í reynd.
Svolítið villandi þetta með sýnd og reynd. Á bakvið glittir í grjótharðan veruleika alþjóðastjórnmála.
Nató er hernaðarbandalag. Ríki innan bandalagsins styrkjast en ríki utan bandalagsins veikjast í réttu hlutfalli við styrk bandalagsríkjanna. Eftir upplausn Sovétríkjanna 1991 styrkist Nató jafnt og þétt, með fjölgun aðildarríkja er eiga landamæri að Rússlandi.
Lögmálið um hlutfallslegan styrk gildir á milli nágranna. Það breytir engu fyrir Kína hvort Úkraína er aðili að Nató eða ekki. Aftur breytir aðildin öllu fyrir Rússland.
Rússum var aldrei boðin aðild að Nató. Hernaðarbandalög þurfa óvin til að réttlæta tilveru sína. Ef enginn er andstæðingurinn er bandalag um hernað óþarft.
Stækkun Nató í austurátt var bein ögrun við öryggishagsmuni rússneska ríkisins. Eftir tilboð Nató til Úkraínu og Georgíu vorið 2008 um aðild gerðu Rússar innrás í Georgíu, sem er smáríki, til að undirstrika að öryggi Rússlands yrði varið með vopnavaldi.
Frá 2008 mátti semja við Rússland um að Úkraína yrði hlutlaust land utan hernaðarbandalaga. Tíminn var ekki notaður til samninga. Í staðinn hófst Natóvæðing Úkraínu á bakvið tjöldin. Ásýndin var að Úkraína sé hlutlaust land en í reynd var landið jafnt og þétt gert að Nató-ríki.
Rússar stóðu frammi fyrir tveim kostum, báðum slæmum. Í fyrsta lagi að leyfa Úkraínu aðildina að Nató og standa andspænis fullum herstyrk Bandaríkjanna í fyrirsjáanlegum deilum um stöðu Rússa í austurhluta Úkraínu. Í öðru lagi að hefja stríðsaðgerðir áður en Úkraína yrði fullgildur aðili að hernaðarbandalaginu.
Ráðandi öfl í Washington og Brussel veðjuðu á að Rússar tækju fyrri kostinn en töldu sig fullbúin undir þann seinni. Stríð eru aftur óútreiknanleg. Atburðir á vígvellinum ráða ferðinni hvað sem líður undirbúningi.
Ungir menn í blóma lífsins deyja í þúsundavís á meðan valdamenn tala um sýnd og reynd. Villimennska mannfórna í nafni siðmenningar.
![]() |
Úkraína í raun og veru aðili að NATO |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 13. janúar 2023
Skipstjórinn og stolin heimild Stundarinnar og Kjarnans
Stundin og Kjarninn voru á kennitölum á leið í gjaldþrot. Páll skipstjóri Steingrímsson, sem varð fyrir byrlun og gagnastuldi, er með sterkt mál gegn miðlunum tveim, sem birtu stolin einkagögn hans. Nýja útgáfan fær nafnið Heimildin. Við hæfi þar sem stolin heimild varð Stundinni og Kjarnanum að falli.
Undanþágu Samkeppniseftirlitsins þurfti til að sameinast. Einnig við hæfi þar sem miðlarnir tveir hafa um langa hríð verið á undanþágu frá almennu siðferði.
Þrír sakborningar í lögreglurannsókn vegna byrlunar, gagnaþjófnaðar og brota á friðhelgi einkalífs eru á ritstjórn nýja miðilsins. Ef Helga Seljan er bætt við, en hann verður líklega vitni í væntanlegu dómsmáli, er þriðjungur ritstjórnarinnar tengd lögreglurannsókn.
Ritstjórn hinna grunuðu stefnir að ,,óháðri, vandaðri, gagnrýninni og uppbyggilegri aðhaldsblaðamennsku."
Fyrirséðir efnisþættir ritstjórnar hinna grunuðu
- Hvernig skal byrla og stela og fá blaðamannaverðlaun fyrir vikið
- Bróðir minn sakborningurinn, eftir Ingibjörgu Dögg ritstjóra
- Flótti frá réttvísinni, hagnýt ráð byggð á reynslu
- Sértu jaðarmiðill, gerðu bandalag við RÚV
- Samþætting vinnslu á glæpum milli ákæruvaldsins og fjölmiðla, Ingi Freyr skrifar
- Blaðamenn og almenn hegningarlög, fréttaskýring
- Hvernig skal nýta sér andleg veikindi heimildarmanna - eftir rannsóknaritstjóra
- 3 aðferðir til að þagga niður í gagnrýni, raðfrétt Þórðar Snæs
- Starfsöryggi sakborninga á RÚV, aðsend grein eftir Þóru Arnórs
Blaðamennirnir leita ekki langt yfir skammt að efni. Heimildir fyrir ofangreindum efnisþáttum eru allar inni á ritstjórninni. Nafn og aðdragandi nýja miðilsins mynda ritstjórnarstefnuna: kennitöluflakk með undanþágu frá heimildum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 12. janúar 2023
Glæpur og refsing saksóknara og bróa blaðamanns
Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari fer með rannsókn Namibíumálsins svokallaða. Bróðir Finns, Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður á Stundinni, bjó málið í hendur Finns Þórs ásamt öðrum blaðamönnum.
Í bókinni Ekkert að fela, sem er um Namibíumálið, segir í eftirmála að þegar leið á ,,verkefnið var ákveðið að dagblaðið Stundin yrði hluti af fjölmiðlabandalaginu í birtingunni og blaðamaðurinn Ingi Freyr Vilhjálmsson var kallaður til..."
Verkefnið, sem vísað er til, eru ásakanir Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara og RSK-miðla (RÚV, Stundarinnar og Kjarnans) um að Samherji hafi stundað stórfelldar mútugreiðslur í Namibíu.
Verkefnið hófst haustið 2018 með fundi Helga Seljan fréttamanns RÚV og Jóhannesar fyrir milligöngu Kristins Hrafnssonar. Í rúmt ár var unnið að málinu. Ingi Freyr hafði verið málsaðili í marga mánuði þegar fréttaskýringarþátturinn Kveikur opinberaði Namibíumálið í nóvember 2019.
Í beinu framhaldi fékk Finnur Þór saksóknari hjá embætti héraðssaksóknari Namibíumálið til rannsóknar með fingraförnum bróður síns Inga Freys og fjölmiðlabandalagsins, RSK-miðla.
Blaðamenn bjuggu til sögu um mútugreiðslur Samherja í Namibíu. Það vantaði bara eitt. Gögn sem staðfestu söguna. Jóhannes uppljóstrari lagði ekki fram nein gögn sem renndu stoðum undir vitnisburðinn. Sjálfur er uppljóstrarinn uppfullur af hatri á fyrrum vinnuveitanda og haldinn ranghugmyndum sem hann rakti til ótæpilegar vímuefnaneyslu.
Jóhannes er svo léleg heimild að vitnisburður hans er hvorki tækur í dómssal á Íslandi né í Namibíu. Trúgjarnir blaðamenn, sjálfir með ranghugmyndir, átu hráar ímyndanir uppljóstrarans. Þar hæfði skel kjafti.
Frá miðju sumri 2020 er Arna McClure lögfræðingur hjá Samherja sakborningur í Namibíurannsókn Finns Þórs. Bróðir hans, Ingi Freyr á Stundinni, hefur á þessum tíma skrifað 31 frétt þar sem nafn Örnu er bendlað við mútugreiðslur.
Fréttirnar eru orðaðar á lævísan hátt, þar sem ákvörðun Finns Þórs saksóknara um að halda Örnu sem sakborningi, eru notaðar sem rökstuðningur fyrir aðild að glæpum. Endurvinnsla bræðranna felur í sér að Ingi Freyr ásakar, sem Finnur Þór tekur við og stimplar sem lögmætar og aftur skrifar Ingi Freyr fréttaásökun með bróðir sinn sem heimild. Í rökfræði heitir þetta hringsögn og er ómarktækur málflutningur. Dæmi úr Stundinni í 142. tbl. 2021 s. 50:
Jón Óttar kom að þessum greiðslum, ásamt Örnu Bryndísi McClure, sem var
viðtakandi tölvupósts hans og eru þau nú bæði með réttarstöðu sakbornings í
rannsókn embættis héraðssaksóknara ó Namibíumálinu.
Ingi Freyr blaðamaður blekkir lesendur Stundarinnar í fleiri en einum skilningi. Auðvitað á hann að upplýsa lesendur að bróðir hans er téður saksóknari. En þá myndu lesendur átta sig á að sama fréttaásökunin verður ekki trúverðugri þótt hún fari á milli bræðranna.
Ef svona aðferðum væri beitt í viðskiptalífinu yrði það óðara kallað spilling, - og hún af alvarlegra taginu þar sem í hlut á opinber embættismaður. En það virðist ekki tiltökumál þótt bræður véli um stöðu einstaklinga í opinberum málum, þar sem ríkir hagsmunir annars bróðurins eru að hinn finni sök sem ákært verði fyrir.
Nú, þegar Arna leitar til dómstóla, að fá stöðu sinni sem sakborningi aflétt, verður saksóknari að skila greinargerð til héraðsdóms sem rökstyður ítrekaðar ákvarðanir Finns Þórs um réttarstöðu Örnu.
Hvað gerir Finnur Þór? Mun hann taka saman fréttir bróa blaðamanns og kalla samantektina greinargerð? Og halda því jafnframt fram að hann sé óhlutdrægur og vel hæfur handhafi ákæruvaldsins í máli þar sem bróðir hans, blaðamaðurinn, á undir orðspor sitt og æru að málið fái ákveðna niðurstöðu?
Þeir hafa um eitt og annað að spjalla bræðurnir, saksóknarinn og blaðamaðurinn. Almenningur, á hinn bóginn, hlýtur að klóra sér í kollinum og spyrja hvernig komið er fyrir réttarríkinu. Hver ákvað að fjölskyldufyrirtækið Glæpur og refsing ehf. yrði handhafi ákæruvaldsins?
(Neðanmáls innan sviga: þriðji bróðirinn, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, er lögmaðurinn sem stefnir tilfallandi bloggara fyrir hönd ritstjóra og blaðamanns Kjarnans. Stefnan er vegna bloggskrifa um RSK-sakamálið. Vonandi er fjórði bróðirinn ekki héraðsdómari).
![]() |
Tjáir sig ekki um meint vanhæfi saksóknara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 11. janúar 2023
Veður í 8 ár er ekki loftslag
Meðaltalshiti yfir átta ár, hvort heldur á Íslandi eða heiminum öllum, veitir álíka merkilegar upplýsingar og meðaltal símanúmera - hvort heldur á Íslandi eða heiminum öllum. Í báðum tilvikum eru tölurnar fullkomlega merkingarlausar, aðeins heilaleikfimi.
Breytingar á loftslagi verða ekki mældar yfir skemmra tímabil en 30 ár. Þetta er alþjóðlega viðurkennd skilgreining. Veðrabreytingar til skamms tíma veita álíka upplýsingar um framtíða og knattspyrnuúrslit í Englandi segja fyrir um hvaða lið verði meistari í Þýskalandi.
Hvað gengur Samantha Burgess, aðstoðarforstjóra hjá Kópenikus, til þegar hún segir að veðrabreytingar síðustu átta ára ,,sýna að við erum nú þegar að verða vitni að skelfilegum afleiðingum hlýnandi jarðar"?
Ekki að upplýsa heldur hræða.
Til eru gervihnattamælingar á hitabreytingum lofthjúpsins frá 1979. Þær segja þá sögu að langtímaþróun hitabreytinga er 1°C á öld, já ein gráða. Það er ekki vitnisburður um hamfarahlýnun heldur um stöðugleika í hitafari.
![]() |
Síðustu átta ár þau heitustu til þessa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 10. janúar 2023
Landsvirkjun, OR og hókus-pókus hagfræðin
Landsvirkjun og OR eru á kafi í hókus-pókus hagfræðinni þar sem peningar vaxa á trjám. Öllu heldur: fjármagn er búið til úr koltvísýringi, CO2.
Dótturfélag OR, Carbfix, fær uppslátt í þýsku útgáfunni Die Welt fyrir að þróa aðferð að dæla koltvísýringi úr andrúmsloftinu ofan í jörðina. Tilfallandi athugasemd fjallaði um stórvirkið fyrir hálfu öðru ári og sagði
Eldgosið í Fagradalsfjalli losar um 10 til 11 þúsund tonn af koltvísýringi, CO2, á dag, segir Jarðvísindastofnun. Fyrsta og stærsta heildstæða lofthreinsi- og förgunarstöðin í heiminum við Hellisheiðarvirkjun fangar 4 þúsund tonn af CO2 á ári.
Jú, þið lásuð rétt. Minna en hálfsdags framleiðsla litlu eldsumbrotanna í Fagradalsfjalli fer ofan í holu á Hellisheiði Á EINU ÁRI.
Landsvirkjun selur fyrir milljarða á ári upprunavottorð, sem er nútímaútgáfa aflátsbréfa miðalda. Upprunavottorðin eru keypt af orkusóðum í Evrópu til að sýna fram á orkuvæna framleiðslu. Vegna sölu á upprunavottorðum/aflátsbréfum er íslensk orka ekki lengur græn nema gegn gjaldi.
Hókus-pókus hagfræðin býr til peninga úr þeirri firru að koltvísýringur sé okkur lifandi að drepa. Veruleikinn er sá að ef við útrýmum koltvísýringi úr andrúmsloftinu jafngilti það sjálfsmorðssáttmála, segir William Happer loftslagsvísindamaður. Koltvísýringur er undirstaða lífs á jörðinni, segir í yfirlýsingu 700 vísindamanna.
Skalat maðr rúnar rísta/ nema ráða vel kunni, kvað Egill Skallagrímsson. Ekki skal fást við galdra nema maður kunni vel skil á þeim. Hókus-pókus hagfræðin steytir á skeri fyrr heldur en seinna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 9. janúar 2023
Brotið bannorð í Úkraínu
Stríð var bannorð, tabú, í Evrópu eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Tvö Evrópustríð urðu heimsstríð á 30 árum. Ekki undir nokkrum kringumstæðum mátti Evrópa efna til þriðja hildarleiksins.
Ekki svo að skilja að Evrópa væri í færum að gera eitthvað heimssögulegt árin eftir 1945. Álfan var jaðarsett í heimspólitíkinni þar sem Bandaríkin og Sovétríkin réðu ferðinni, skiptu m.a. Evrópu í vestur og austur.
Kalda stríðinu lauk 1991 með hruni kommúnisma og Sovétríkjanna. Skærur í Júgóslavíu, sem var eitt þeirra ríkja er leystust upp, voru undantekning. Almennt voru umskiptin friðsamleg og siðmenntuð. Hrun Sovétríkjanna er eitt af fáum dæmum í veraldarsögunni að heimsveldi koðnar niður án meiriháttar hörmunga.
Aðeins 30 árum frá lokum kalda stríðsins hefst stríð í Úkraínu sem brýtur tabúið um að Evrópa eigi ekki að stunda villimennsku.
Enda var það ekki Evrópa sem hóf stríðið, heldur Pútín og Rússland, segir Daníel Hannan, vænn maður og hugþekkur sem nokkrum sinnum hefur komið til Íslands að berja andstæðingum ESB eldmóð í brjóst.
Tilfallandi höfundur las greiningu Hannan með athygli. ,,Ólíkt Þýskalandi eftir 1945 hefur Rússland eftir 1990 ekki horfst í augu við fortíð sína," skrifar sá enski. Skásti kosturinn sé algjör ósigur Pútín og Rússlands, heitir það hjá Hannan. Lokaorð greinarinnar eru: ,,Sigrað Rússland yrði á ný tekið í samfélag þjóðanna sem lýðræðissamfélag. Skrítið hvernig hlutirnir verkast."
Hannan gefur sér að Úkraína sé lýðræðisríki á pari við Vestur-Evrópuríki. En landinu var ekki hleypt inn í ESB vegna spillingar og ólýðræðislegra stjórnarhátta. Þá sleppir sá enski að ræða Nató-aðildina, sem Úkraínu var boðin 2008, gagngert til að ögra Rússum, stjórnarbyltingunni 2014 og vanefndum á friðarsamningum kenndum við Minsk.
Greiningin byggir á valkvæðum staðreyndum annars vegar og hins vegar óskhyggju. Engar líkur eru á að ef Rússland gjörtapaði og Pútín færi frá völdum að upp myndi rísa lýðræðislegt Rússland er hagaði sér eins og Evrópa almennt, sem þægur þjónn Bandaríkjanna. Úkraínustríðið er heldur ekki einkaframtak Pútín. Ríkjandi sjónarmið í Rússlandi allar götur frá lokum kalda stríðsins er að útþensla Nató í austur ógni öryggishagsmunum ríkisins.
Í Rússlandi nú á dögum myndi gerast það sama og fyrir hundrað árum, þegar landið tapaði stríði og varð fyrir stjórnarbyltingu. Eftir 1917 tók við nokkurra ára blóðsúthelling, með þátttöku vestrænna ríkja, sem lauk með alræði kommúnistaflokksins og stofnun Sovétríkjanna.
Ógrynni kjarnorkuvopna er í Rússlandi, sem yrðu notuð í fyrirséðum ófriði. Gegn hverjum og af hverjum er óvissu háð. Stríð milli ríkja eru ófyrirséð, borgarastríð enn frekar.
Byltingar búa ekki til lýðræði. Sú franska skóp Napoleón, Stalín var afurð þeirrar rússnesku. Lýðræði verður til með málamiðlun. Virðing fyrir ólíkum hagsmunum er hornsteinn málamiðlana. Þannig fæst friður.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 8. janúar 2023
3 meint Samherjamál eru öll RÚV-mál
Þrjú stór fréttamál frá 2012 eru í umræðunni tengd norðlensku útgerðinni Samherja. Með röngu. Málin þrjú eru öll með upphaf í ríkisfjölmiðlinum, RÚV. Þau eru réttnefnd RÚV-málin og segja söguna um það hvernig fréttir verða pólitík og enda í glæp.
Hér er vitanlega átt við Seðlabankamálið, Namibíumálið og byrlunarmál Páls skipstjóra. Málin þrjú eiga sér öll afmælisdag.
1. Seðlabankamálið hófst 27. mars 2012 með húsrannsókn hjá Samherja að morgni og Kastljósþætti á RÚV að kveldi sama dags. Tilefnið var ásökun RÚV, byggð á skýrslu sem var skáldskapur. Samherja var sýknaður fyrir dómi. Ásakanir RÚV kostuðu samfélagið tugi milljóna króna. Saklaust fólk mátti sitja undir ásökunum að stunda afbrot. En RÚV fitnaði eins og púkinn á fjósabitanum.
2. Namibíumálið byrjar með Kveiksþætti á RÚV þann 12. nóvember 2019 þar sem uppljóstrarinn Jóhannes Stefánsson stígur fram á opinberan vettvang í boði RÚV. Helstu ásakanir á hendur Samherja voru mútugjafir til namibískra embættismanna. Málið fór til rannsóknar sakamálayfirvalda á Íslandi og í Namibíu. Í Namibíu stendur yfir dómsmál þar sem Samherji er ekki nefndur a nafn - nema sem brotaþoli. Rannsóknin hér á landi er svo gott sem runnin út í sandinn. Það á aðeins eftir að gefa út dánartilkynningu.
Kostnaður við Namibíumálið hleypur á milljörðum. Héraðssaksóknari fékk 200 milljónir til að rannsaka og það er aðeins dropi i hafið. Saklausir menn eru sagðir ákærðir í fréttum RÚV. Það er bláköld lygi.
3. Byrlunarmálið verður til 3. maí 2021 þegar Páli Steingrímssyni skipstjóra hjá Samherja er byrlað, síma hans stolið og gögn tekin ófrjálsri hendi að undirlagi RÚV með tilstyrk Stundarinnar og Kjarnans, sem saman mynda RSK-miðla. Fjórir blaðamenn bíða ákæru vegna aðildar að málinu. Brotaþolar eru tveir, Páll skipstjóri og Arna McClure lögfræðingur hjá Samherja.
RÚV-málin þrjú sýna þróun. Gögn eru fyrst fölsuð, síðan er ónýt heimild gerð trúverðug og loks taka starfsmenn RÚV lögin í sínar hendur og eiga aðild að alvarlegum glæp, byrlun og stuldi. Ferlið er það sama og hjá þjófi sem byrjar að stela smápeningum en endar sem stórglæpmaður. Hver ber ábyrgð?
Ef RÚV lyti faglegri stjórnun og sinnti lágmarkseftirliti með ritstjórnarefni væru RÚV-málin gegn Samherja aðeins eitt, Seðlabankamálið, en ekki þrjú. Aðalmaðurinn í fyrstu vegferðinni er Helgi Seljan. Þegar ljóst varð að fréttamennska Helga þverbraut allar skráðar og óskráðar siða- og starfsreglur blaðamanna átti yfirstjórn RÚV að grípa í taumana. Farið hefði verið í saumana á vinnubrögðunum og spurt hvernig í veröldinni það gerðist að fölsuð heimild varð undirstaðan að samsæri tveggja ríkisstofnana, Seðlabankans og RÚV, í aðför að einkafyrirtæki. En ekkert var aðhafst.
Helgi og samverkamenn hans drifu sig þegar í næsta leiðangur, Namibíumálið. Áfram sömu vinnubrögðin. Skáldskapur og órar manns, sem er vímuefnasjúklingur og stórfelldur vændiskaupandi; en allt er tekið trúanlegt og alþjóð selt sem sannindi.
Það þurfti engan Einstein að sjá við frumsýningu Namibíu-þáttar RÚV að hér var ekki á ferðinni fréttamennska. ,,RÚV safnar liði til að trúa tilbúningnum," segir í tilfallandi færslu daginn eftir frumsýningu. Þar er vitnað í frétt RÚV, sem unnin var sama kvöld og Kveiksþátturinn var frumsýndur. Tveir fundir höfðu verið skipulagðir af fréttamönnum RÚV, annar var þingflokksfundur Pírata en hinn hópfundur stúdenta. Í fréttinni segir um þingflokksfund Pírata: ,,Þau sátu límd við skjáinn þegar kvikmyndatökumaður fréttastofu heimsótti þau og báðu vinsamlegast um að vera ekki trufluð." Skilaboðin út í samfélagið voru að nú ætti að láta hendur standa fram úr ermum, mæta á götur og torg að öskra um spillingu á Íslandi, sem væri orðin útflutningsvara.
Morgunljóst var til hvers refarnir voru skornir. Það átti að taka Samherja í nefið, sem hafði ekki tekist í Seðlabankamálinu. Í leiðinni að vekja reiðibylgju í samfélaginu til að styrkja dagskrárvald RÚV í opinberri umræðu. Þetta er ekki fréttamennska heldur pólitískur aktívismi.
Ef heil brú væri í yfirstjórn RÚV og dómgreindin óbrjáluð væri tekið á óverjandi vinnubrögðum fréttamanna áður en skaðinn yrði enn meiri. En viðbrögðin voru þau að hefja aðgerðafréttamennsku til skýjanna og hvetja fréttamenn til að halda áfram á sömu braut. Gæði frétta voru ekki metin eftir sannleiksgildi heldur hvort þær sköpuðu úlfúð og óeirð i samfélaginu.
Það leiddi til þriðja RÚV-málsins, tilræði að lífi og heilsu Páls skipstjóra og stuldi á eigum hans. Óvönduð vinnubrögð sem líðast um langa hríð eru hvatning til æ yfirgengilegri háttsemi. Engar hömlur, engin varnaðarorð. Þvert á móti, lestir eru lofaðir, fréttamennska er aukaatriði en samfélagsleg reiðibylgja aðalatriði. Afleiðingin verður skipulagður glæpur.
Hvað Helga Seljan varðar sérstaklega þá er það sigur fyrir íslenska þjóð og blaðamennsku að þessi öflugi blaðamaður haldi áfram sínum störfum, sagði Stefán Eiríksson útvarpsstjóri er Helgi fór á hjáleiguna, Stundina, eftir samfellda hörmungarsögu á Efstaleiti í áratug. Þegar æðsti yfirmaðurinn er þeirrar sannfæringar að staðfestur og úrskurðaður brotamaður sé sérstök fyrirmynd verður skiljanleg umbreytingin á Efstaleiti í Glæpaleiti.
RÚV er spilltasta stofnunin í sögu íslenska ríkisins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)