Skipstjórinn og stolin heimild Stundarinnar og Kjarnans

Stundin og Kjarninn voru á kennitölum á leið í gjaldþrot. Páll skipstjóri Steingrímsson, sem varð fyrir byrlun og gagnastuldi, er með sterkt mál gegn miðlunum tveim, sem birtu stolin einkagögn hans. Nýja útgáfan fær nafnið Heimildin. Við hæfi þar sem stolin heimild varð Stundinni og Kjarnanum að falli. 

Undanþágu Samkeppniseftirlitsins þurfti til að sameinast. Einnig við hæfi þar sem miðlarnir tveir hafa um langa hríð verið á undanþágu frá almennu siðferði. 

Þrír sakborningar í lögreglurannsókn vegna byrlunar, gagnaþjófnaðar og brota á friðhelgi einkalífs eru á ritstjórn nýja miðilsins. Ef Helga Seljan er bætt við, en hann verður líklega vitni í væntanlegu dómsmáli, er þriðjungur ritstjórnarinnar tengd lögreglurannsókn.

Ritstjórn hinna grunuðu stefnir að ,,óháðri, vand­aðri, gagn­rýn­inni og upp­­­bygg­i­­legri aðhalds­­­blaða­­mennsku."

Fyrirséðir efnisþættir ritstjórnar hinna grunuðu

  • Hvernig skal byrla og stela og fá blaðamannaverðlaun fyrir vikið
  • Bróðir minn sakborningurinn, eftir Ingibjörgu Dögg ritstjóra
  • Flótti frá réttvísinni, hagnýt ráð byggð á reynslu 
  • Sértu jaðarmiðill, gerðu bandalag við RÚV
  • Samþætting vinnslu á glæpum milli ákæruvaldsins og fjölmiðla, Ingi Freyr skrifar
  • Blaðamenn og almenn hegningarlög, fréttaskýring
  • Hvernig skal nýta sér andleg veikindi heimildarmanna - eftir rannsóknaritstjóra
  • 3 aðferðir til að þagga niður í gagnrýni, raðfrétt Þórðar Snæs
  • Starfsöryggi sakborninga á RÚV, aðsend grein eftir Þóru Arnórs

Blaðamennirnir leita ekki langt yfir skammt að efni. Heimildir fyrir ofangreindum efnisþáttum eru allar inni á ritstjórninni. Nafn og aðdragandi nýja miðilsins mynda ritstjórnarstefnuna: kennitöluflakk með undanþágu frá heimildum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband