Trump og Pútín: óvinaímyndir og sterkir menn

Óvinaímynd auđveldar skilning, ekki síst í alţjóđastjórnmálum. Í kalda stríđinu voru Sovétríkin skýr óvinaímynd vestrćnna ţjóđa. Sovétríkin stóđu fyrir alrćđi kommúnisma gegn vestrćnu lýđrćđi (sem, raunar, stóđ ekki alltaf undir nafni).

Fall Sovétríkjanna fyrir aldarfjórđungi skóp skilyrđi sögulegra sátta ţar sem arftaka Sovétríkjanna, Rússlandi, yrđi hleypt inn í samfélag vestrćnna ţjóđa. Svo fór ekki. Eftir áratug upplausnar í Rússlandi tók völd ţar mađur ađ nafni Pútín - og hefur haldiđ ţeim síđan.

Pútín hefur stjórnađ Rússlandi í tíđ fjögurra Bandaríkjaforseta: Clinton, Bush yngri, Obama og nú Trump. Af ţessum fjórum er Trump líkastur Pútín; afgerandi og umdeildur.

Vonir stóđu til ađ Trump og Pútín myndu loks grafa stríđsöxina, sem úreltist viđ fall Sovétríkjanna. Tvímenningarnir skiptust á skjalli á međan Trump stóđ í kosningabaráttu sinni á síđasta ári.

En óvinaímyndin, sem gerđi Bandaríkin og Rússland ađ andstćđingum ţótt efnislegar forsendur vćru ekki lengur fyrir hendi, tók á sig nýja mynd viđ sigur Trump. Hann var sagđur strengjabrúđa Pútín og á í vök ađ verjast á heimavelli vegna ásakana um ađ hafa orđiđ forseti međ stuđningi Rússa.

Sumir Bandaríkjamenn, til dćmis Paul Saunders og Stephen F. Cohen, telja ađ nýju óvinaímyndinni, sem haldiđ er á lofti, um ađ Trump sé handbendi Pútín, stórauki hćttuna af stríđi fyrir slysni á milli Bandaríkjanna og Rússlands.

Sterkir menn eru oft hégómlegir. Ţeir ţurfa reglulega ađ stađfesta ađ ţeir standi undir nafni. Ţeir taka stórar og afgerandi ákvarđanir í ţví skyni. Fyrirsjáanlegt handaband Trump og Pútín í Hamborg er ekki stór og afgerandi ákvörđun. En ţađ er ţó huggulegra ađ óvinaímyndir hittist augliti til auglitis og takist í hendur. 


mbl.is Trump og Pútín hittast í Ţýskalandi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju ćtti Pútin ađ vilja fá "sterkan" Bandaríkjaforseta, sem gćti fćrt Bandaríkin aftur upp á skaftiđ?

Ţetta er augljós "rangfćrsla" ... hitt er mjög líklegt, og ţađ er ađ Rússar hafi frekar reint ađ ađstođa Hillary ... veikur forseti í Bandaríkjunum, styrkir Rússa ...

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráđ) 30.6.2017 kl. 12:46

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband