Siðir og smávegistrú

Siðaboð í frumstæðum samfélögum byggja á trú. Múslímar leita ásjár í 1400 ára gömlum texta um hvað má og hvað ekki. Kristnir á vesturlöndum taka sinn gamla texta mátulega hátíðlega og færðu sig nær mannhelginni, sem boðar mannréttindi öllum til handa án tillits til trúarsannfæringar, kynþáttar eða kyns.

Trú er í kjarna sínum fordómar. Kennisetningar trúarinnar eru hvorki byggðar á skynreynslu einstaklingsins né almennt viðurkenndum aðferðum, t.d. vísinda, til að meta og mæla sannleiksgildi kennisetninganna. Maður annað hvort trúir eða ekki.

Og þó. Líklega trúa flestir smávegis. Í smávegistrú ber maður virðingu fyrir gömlum gildum og arfleifð kynslóðanna, sem einatt er trúarlegs eðlis, um leið og maður treystir eigin dómgreind til að skilja hismið frá kjarnanum.

Trú vísar í fortíðina, svarar spurningum um upphaf tilverunnar. Og alveg eins og við vitum ekkert um upphafið er framtíðin okkur hulin. Smávegistrúin brúar bilið milli fortíðar og nútíðar og gefur von um framtíðina. Smávegistrúin er ekki altæk eða útilokandi, eðli málsins samkvæmt, og kennir þar af leiðandi umburðarlyndi og hófstillingu. Sem eru prýðileg siðaboð. Þarfaþing smávegistrúin.


mbl.is Betra að vera guðleysingi segir páfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Trúarbrögð er elífðar vifangsefni að tala um og erfitt að skíra sína sýn á efnið. En heyrt hef ég presta vitna í Biblíuna af þvílíkri speki að maður heillaðist. Mörgum gengur illa að skilja til hlýtar það sem skrifað er í Gamlatestamentinu,enda greinilega túlkað all-mismunandi.En dæmisögur Jésús eru nokkuð sem vert er að hugsa um og er mér minnistætt einmitt núna vegna ummæla Páfa: "Ekkert er það utan mannsins er saurgi hann þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn sem út frá honum fer".
 Tók þetta úr Markúsarguðsspjalli.

 


Helga Kristjánsdóttir, 23.2.2017 kl. 18:48

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þið fattið að klaufalegi tvípunkturinn eftir páfa á ekki við,en dæmisagan á við ummæli páfa. Það er mitt mat. 

Helga Kristjánsdóttir, 25.2.2017 kl. 03:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband