Vinstrispilling í ráðhúsinu

Píratar og vinstrimenn ráða Reykjavíkurborg þar sem innviðir eins og skólar og gatnakerfi grotna niður vegna skorts á fjármagni. En ferðalög til útlanda eru ekki naumt skömmtuð þegar meirihlutinn á í hlut.

Ítrekaðar tilraunir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til að fá upplýsingar um ferðakostnað borgarinnar eru kæfðar af meirihlutanum. Eðlilegum kröfum um gagnsæi útgjalda í þessum málaflokki er vísað frá.

Vinstriflokkarnir umbuna sínu fólki með ferðalögum til útlanda. Vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttir hélt t.d. lífi út síðasta kjörtímabil, þrátt fyrir að vera í minnihluta á alþingi, með því að veita þingmönnum Hreyfingarinnar rúmar ferðaheimildir.


mbl.is Tillögu um ferðakostnað vísað frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Á sínum tíma var Ólafur F. Magnússon talinn eitthvað skrýtinn að fara aldrei í ferðalög til útlanda á vegum borgaryfirvalda. 

Ómar Ragnarsson, 7.9.2016 kl. 07:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband