Fjölmiðlun án risafjölmiðla - losnum við 365 og RÚV

Samfélagsmiðlar og blogg eru vettvangur frétta og umræðu um fréttir, og í þeim skilningi blómstrandi fjölmiðlar, á meðan fjölmiðlafyrirtæki eru bæði í vanda með rekstur og faglega stefnu.

Verið er að búta í sundur stærstu fjölmiðlasamteypu landsins, 365-miðla. RÚV er fjárhagsleg og fagleg ruslahrúga sem eyðir almannafé í að skapa stjórnarkreppu og þjóna pólitískri dagskrá starfsmanna sinna.

Fjölmiðlarisar eins og 365-miðlar og RÚV eru úrelt fyrirbrigði og eiga hvorki heima á markaðstorgi hugmyndanna né í viðskiptum. Þegar risarnir eru fallnir vex upp lággróðurinn sem stendur í skugganum. Fjölmiðlun sýnir aukna grósku og lýðræðið verður þróttmeira.


mbl.is „Veikir fjölmiðlar eru veikt lýðræði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

 Svo mikið er víst að það styrkir ekki lýðræðið að efla RUV.   

Hrólfur Þ Hraundal, 6.9.2016 kl. 22:38

2 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Við skynjum tímamót í sögul ljósvakamiðlanna hér á landi.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 6.9.2016 kl. 23:09

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Við ættum að þakka fyrir alla fjölmiðla og ólíkar umræðuáherslur. Ég vil hafa RÚV, 365 og alla aðra fjölmiðla, og ekki loka á neinn. Við öll ólík þurfum svo sannarlega ólíkar áherslur og ólíka pólitíska umræðu. Og þá lokar maður ekki á þá sem ekki passa sumum pólitískum valda-afla-áherslum. Svo einfalt er það, að mínu mati.

Netið verður áfram fjölmiðill, en það verður líka að vera jarðtenging í fjölmiðlun utan einangraðra netheima áfram. Allra vegna.

Við lifum, störfum og þroskumst á jörðinni, og þurfum þá jarðtengingu á meðan við lifum hér á jörðinni.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.9.2016 kl. 00:30

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

365 og RUV eru örsmáir fjölmiðlar miðað við fjölmiðla erlendis og vanmegna eftir því. 

Ómar Ragnarsson, 7.9.2016 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband