Beta og Brexit - Boris og Churchill

Stuðningsmenn Brexit, útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, fá byr í seglin þessa dagana. Þjóðerniskennd fær næringu á afmælum drottningar og sparki enskra í Frakklandi.

ESB-sinnar í Bretlandi reyna í örvæntingu að finna veilur á málflutningi Brexit-manna. Samkvæmmt Telegraph stendur til að ráðast gegn Boris Johnson sem fer fyrir Brexit-fylkingu íhaldssmanna.

Boris þykir sopinn góður að sögn. Jafnframt langar hann að leysa af hólmi David Cameroon forsætisráðherra. Spuninn gangur út á að Boris sé valdasjúk fyllibytta. Sami spuni var notaður um Winston Churchill. 


mbl.is Níutíu ára afmæli Elísabetar fagnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Langflestum sagnfræðingum ber saman um að Churchill drakk of mikið áfengi, en það sýnir hvað mikið var í hann spunnið, að hann skyldi vinna öll sín afrek engu að síður og komast yfir nírætt.

Ómar Ragnarsson, 11.6.2016 kl. 13:12

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það var líka sagt að Churchill svæfi lítið; tæki sér í mesta lagi blundi af og til.  Ef Boris verður, auk ofdrykkju, vændur um vindlareykingar í óhófi og næturgöltur, jafngildir það að segja að Boris sé Churchill endurborinn.
Og þá eru andstæðingar hans í vondum málum.   :) 

Kolbrún Hilmars, 11.6.2016 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband