Egill gyðingavæðir múslíma

Egill Helgason segir múslíma samtímans vera gyðinga Hitlers-Þýskalands:

Hættulegasta fólk í Evrópu um þessar mundir eru ekki múslimar og ekki trúleysingjar. Nei, það er fólk sem safnast úti á götum í Þýskalandi til að mótmæla múslimum – og skoðanasystkin þess víða um álfuna. Það var svona sem kynþáttaofsóknirnar sem náðu hápunkti á tíma nasismans byrjuðu. Með því að jaðarhópur, sem skar sig úr meginstraumi samfélagsins, var útnefndur sem stórkostleg ógn.

Hvorki gyðingum né múslímum er gerður greiði með þessum samjöfnuði sem er sögulega rangur og siðferðilega óverjandi.

Byrjum á samhengi hlutanna: af íbúum jarðarkringlunnar teljast þriðjungur til kristni, fimmtungur til múslíma en 0,2% (já, núll komma tvö prósent) til gyðingatrúar. Ein 49 ríki eru með múslíma sem meirihluta íbúa sinna. Hve mörg ríki ætli séu með gyðinga sem meirihluta?

Ekki undir nokkrum kringumstæðum er hægt að líta á múslíma sem jaðarhóp.

Elsta heiti gyðingaofsókna í Evrópu er ,,pogrom" sem er slavneskt orð en ekki þýskt. Gyðingaofsóknir nasista byggðu á kynþáttahyggju sem flokkaði fólk eftir uppruna; aríar efstir og bestir en allir hinir síðri.

Mótmælin sem Egill vísar í að standi yfir í Þýskalandi nú um stundir eru skammstöfuð PEGIDA. Á þýsku: Patriotische Europäer Gegen die Islamisierung des Abendlandes.

Á íslensku: Evrópskir föðurlandsvinir gegn múslímavæðingu vesturlanda.

Evrópusambandið, sem Egill er ákaflega hlynntur, byggir tilveru sína á ,,evrópskum gildum". Egill ætti að banka upp á hjá Brussel og spyrja hvort ekki sé nóg komið af evrópskum rasisma. Við skyldum betur hverfa til þjóðlegra gilda umburðarlyndis - og stunda hvorki sögufölsun né hræsni.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Ekki undir nokkrum kringumstæðum er hægt að líta á múslíma sem jaðarhóp.

Múslimar eru jaðarhópur á Íslandi. Miklu meira fer fyrir andstæðingum múslima heldur en múslimum hér á landi.

Matthías Ásgeirsson, 26.12.2014 kl. 00:40

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það er ekki hægt að kalla Múslima jaðarhóp á Íslandi Matthías,þeir eru alls ekki munaðarlaus trúarhópur þótt séu fámennir hér,eiga fimmtung trúbræðra í heiminum,sem etyrkja þá á allan hátt.Ef til vill þess vegna virðast þeir geta snúið Esb.sinnuðum vinstrimönnum um fingur sér,sem líkist fremur pólitík,þegar ráðist er freklega á aldagamlar venjur kristinna manna hér.Við þær aðstæður lætur meirihluti landsmanna ekki traðka á helgustu trúarsiðum sínum,enda engir þeirra sem kæmu þannig fram í ríkjum Múslima. 

Helga Kristjánsdóttir, 26.12.2014 kl. 06:14

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Leiðr.í þriðju línu styrkja þá.

Helga Kristjánsdóttir, 26.12.2014 kl. 06:17

4 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ég er ekki mikil trúar ræktandi en var þeirrar skoðunar lengi að trú frelsi ætti að vera algert og ekki bara hér norðurfrá heldur og alstaðar.

 

Ég er nú orðin afhuga þessari skoðun vegna fyrirgangs Múhameðstrúar manna, íslamista eða á ég að segja skruddu trúar manna þar sem trúarsöfnuður þessi sækir helst vit sitt í bók sem kölluð hefur verið Kóran, en líka sálmar Satans.

   

Sá sem leyfði sér að  segja sálmar Satans var umsvifalaust dæmdur til dauða af ókosnum, sjálfskipuðum forsjármönnum þessarar skruddu sem einkver karl lét krota sjálfum sér til dýrðar.

   

     

Hrólfur Þ Hraundal, 26.12.2014 kl. 10:26

5 Smámynd: Þorgeir Ragnarsson

Það er svosem bara það sem við er að búast af Agli Helga og skoðanabræðrum hans að demónisera þá sem vilja forða samfélögum sínum frá innra niðurbroti. Egill og félagar ganga út frá að óvinir óvina þeirra muni reynast þeim vinir og bandamenn. Það verður einungis skamma stund.

Þorgeir Ragnarsson, 26.12.2014 kl. 11:50

6 identicon

Sæll Páll - sem og aðrir gestir þínir !

Matthías Ásgeirsson !

Fyllilega tímabært orðið: að þið Egill Helgason farið að átta ykkur á, að Múhameðstrúarmenn eru / og hafa verið viðlíka ALEHEIMSPLÁGA og Kommúnistar og Nazistar, forðum.

Svo - ríður hræsni ykkar ''Vantrúar'' manna ekki við einteyming: hossið einum trúarsöfnuði (Mekku liðinu) hátt, á kostnað : Kristinna manna / Hindúa / Bhúddatrúarmanna, ausk ýmissa annarra.

Hvernig - skyldi standa á því Matthías minn ?

Með beztu kveðjum sem oftar - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.12.2014 kl. 14:42

7 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Það er ekki hægt að kalla Múslima jaðarhóp á Íslandi Matthías

Víst, þeir eru það. Þetta er örlitill hópur sem mjög lítið fer fyrir.

Óskar, ég ræði helst ekki við rasista. Vantrú hefur skrifað margar greinar um íslam, kíktu einfaldlega á www.vantru.is

Matthías Ásgeirsson, 27.12.2014 kl. 18:44

8 identicon

Komið þið sæl - á ný !

Matthías !

Ertu svo mikill tossi - og einfeldningur: að halda því fram að ég sé einhver ''rasisti'', dreng bjálfi ?

Rasistar -  eru skv. mínum skilningi / sem fjölda annarra menntaðir Mannfræðingar - og það er ég alls ekki.  

Þið Vantrúar flón - ættuð að hafa vit á að halda kjapti, getið þið ekki skilið á milli trúarbragða og stjórnmála annarrs vegar - og litarháttar fólks hins vegar.

Ætlarðu aldrei - að skilja það: sem við þig er sagt á íslenzku ?

Þú mátt alveg - kalla fjendur þína : rassvasa ista eða aðra ista / en reyndu að fara rétt með, héðan í frá !!!

Með beztu kveðjum á ný - ekki neinum til kjána prika eins og Matthíasar Ásgeirssonar, alla vegana / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.12.2014 kl. 11:27

9 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Já, ég held þú sért ofurvitlaus rasisti.

Matthías Ásgeirsson, 29.12.2014 kl. 13:49

10 identicon

Sælir - sem fyrr !

Matthías !

Fyrir mér - ert þú, sem hver annar C bekkingur (tossi): ag allsendis ómerkur orða þinna, unz þú takir að vitkast, að nokkru.

Í uppeldi mínu heima á Stokkseyri (1961 - 1971) kenndi gamla fólkið (margt þess: fætt vel fyrir aldamótin 1900) okkur ungdómnum, að við skyldum virða fólk að verðugu:: óháð uppruna eða litarhætti - ætti þar í hlut heiðarlegt og ærlegt fólk / á annað borð.

Múhameðstrúarmenn - vinir þínir aftur á móti (óháð upprunalandi): eru SKRÍMSLIS fylgjendur að upplagi / þar sem þeir hanga á viðurstyggilegum kreddum óþverrans Múhameðs.

Reyndu svo - að fara að lesa þér betur til söguna / hafir þú þá þroska til, dreng stauli.

Með sömu kveðjum - sem hinum seinustu, vitaskuld / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.12.2014 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband