Vælubíllinn fyrir lögmennina Gest og Ragnar H.

Skjólstæðingar Gests Jónssonar og Ragnars H. Hall, Kaupþingsstjórarnir gráðugu, eru með tapað mál enda var Al Thani málið nánast í beinni útsendingu þegar reynt var að ljúga gjaldfærni upp á útrásarbankann.

Í stað þess að takast á við ákæru sérstaks saksóknara í réttarsal reyna þeir Gestur og Ragnar að búa til fjölmiðlafár í kringum kæruna. Gestur gengur svo langt að segja dómsmorð í líkingu við Guðmundar- og Geirfinnsmál í uppsiglingu.

Í því máli voru hrakin og illa gáttuð ungmenni flækt í mannshvörf og ákærð fyrir morð. Í Al Thani málinu eru sterkríkir hvítflibbar sakaðir um umboðssvik. Í Guðmundar- og Geirfinnsmálum fundust aldrei líkin. Í Al Thani málinu er gjaldþrot Kaupþings líkið.

Gestur og Ragnar þurfa að gera betur til að ræsa út vælubíl samfélagsins.


mbl.is Birta samskiptin við dóminn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það er fyndið að Gestur skuli jafna þessu máli við dómsmorð Guðmundar og Geirfinnsmálana!

Hver innsiglaði það dómsmorð annar en Ragnar H. Hall, leðjunautur Gests í þessu dæmalausa máli?

Ragnar, sem settur saksóknari, synjaði sem kunnugt er beiðni Sævars um endurskoðun á þeirra mála. Ragnar ávann sér fyrir vikið viðurnefnið "Hirðfífl Hæstaréttar" meðal starfsbræðra sinna fyrir slæleg vinnubrögð og slappa lögfræði.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 10.4.2013 kl. 16:53

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er bara hægt að segja tvo orð um þetta, Svei attan.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.4.2013 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband