Ríkisstjórnin sameinast um einn óvin: forseta Íslands

Ósamstæðasta ríkisstjórn seinni ára reynir nú að berja í brestina með því að útmála Ólaf Ragnar Grímsson forseta lýðveldisins og Icesave-bjargvætt sem óvin sinn númmer eitt, tvö og þrjú. Talsmaður öldungadeildar Samfylkingarinnar, Jón Baldvin Hannibalsson, ríður á vaðið með breiðsíðu gegn Ólafi Ragnari.

Gísli Baldvinsson bloggari, sem einnig svarar viðurnefninu Gössur, þar sem hann er iðulega málpípa utanríkisráðherra, tekur undir með Jóni Baldvini og brýnir ráðherra lögeggjan að taka til vopna gegn Bessastaðabónda.

Áður hafði Þistilfjarðarpilturinn í fjármálaráðuneytinu látið í það skína að forsetinn væri pörupiltur.

Vopn umboðslausra og fylgislítilla smælingja bíta ekki á Ólafi Ragnari. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Greinin hjá Jóni Baldvin er nú sérstaklega rætin svo vægt sé nú til orða tekið. En verðum við nú ekki að vorkenna Jóni Baldvin svolítið? Hann verður nú aldrei kosinn forseti fyrir Ísland....

Jóhanna (IP-tala skráð) 7.9.2011 kl. 12:12

2 identicon

Jón Baldvin líkir forsetanum við Lady Gaga - og má vita, að algengasta merking orðsins "gaga" á erlendum tungumálum er "elliær" en aukamerking "geðbilaður". Egill Helgason endurbirtir góðan part af grein Jóns Baldvins á bloggi sínu, með velþóknun margra lesenda. En Þór Sari er á öðru máli og segir í athugasemd sinni: "Það eru greinileg enginn takmörk fyrir því hversu langt Samfylkingin ætlar að ganga til að koma sjálfri sér undan ábyrgð sinni á Hruninu og þeim hremmingum sem Icesave samningarnar hefðu leitt yfir þjóðina..."

Sigurður (IP-tala skráð) 7.9.2011 kl. 12:46

3 Smámynd: Viggó Jörgensson

Forsetinn þarf að hætta auðmannadekrinu.

Í þetta sinn var það kínverskur "auðmaður". 

Viggó Jörgensson, 7.9.2011 kl. 13:31

4 Smámynd: Viggó Jörgensson

Annars er Jón Baldvin alltaf stórskemmtilegur.

Nú kallar hann Steingrím og Össur

ábyrga stjórnmálaleiðtoga...

Viggó Jörgensson, 7.9.2011 kl. 13:36

5 identicon

Jón Baldvin hefur gert stórgóða hluti fyrir land og þjóð.

Betra ef það væru einhverjir slíkir til í dag. En pólutíkusar verða að þekkja sinn vitjunartíma og hætta áður en þeir verða blindir og fólk hafnar þeim. Þetta á við alla stjórnmálamenn/konur.

Jóhanna (IP-tala skráð) 7.9.2011 kl. 13:45

6 identicon

Man einhver eftir tveimur mönnum sem  riðu um héruð fyrir margt löngu? 

Á rauðu ljósi var yfirreiðin kölluð. Þá voru þeir miklir félagar.

Nú vill annar gefa hinum rauða spjaldið! 

hey (IP-tala skráð) 7.9.2011 kl. 14:51

7 Smámynd: Elle_

Forsetinn er mannlegur og brenglanir og illt umtal koma örugglega við hann en hann ætti að geta dustað kjaftæðið úr Versta Flokki Jóhönnu af öxlum sér eins og hverju öðru ryki.  Rykmökkurinn frá þeim blekkir engan.      

Elle_, 7.9.2011 kl. 15:18

8 Smámynd: Elle_

Jóhanna, ég get ekki séð hvað Jón Hannibalsson hefur gert fyrir land og þjóð.  Hann laug um ICESAVE og Sigurður Líndal afvopnaði hann opinberlega og sagði hann ekki skirrast við að segja ósatt; hann ýtti manna mest undir að troða landinu í EES og ætlar núna að ljúga okkur inn í E-sambandið með Jóhönnu og co.  Og hann rakkar niður forsetann eins og villimenn mundu gera.  Honum er ekki annt um sannleikann, það mikið er víst. 

Elle_, 7.9.2011 kl. 15:28

9 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Aðeins nákvæmara; Ríkisstjórnin á tvo óvini; Íslensku þjóðina, land hennar og Ólaf forseta. Gegn þessu stendur hún.

Gunnar Rögnvaldsson, 7.9.2011 kl. 17:36

10 identicon

Var það ekki regluverk EES sem ýtti undir og skipaði okkur að einkavæða bankana okkar?  Við vitum hvernig það tókst til.  Það var illa og klaufalega staðið að einkavæðingunni en regluskipunin kom frá EES, sem Jón Baldvin og hans flokkur tókst að koma í gegn hérlendis.

Og hvar er þessi flokkur núna?  Í ríkisstjórn, ennþá eftir að fjármálakerfið hér á landi hrundi u.þ.b. einu ári eftir að þessi stjórnmálaflokkur settis aftur á ný í ríksstjórn undir nýju nafni.  Það má því syrja sig, hver er hinn raunverulegi "Hrunflokkur"?

Jóhannes (IP-tala skráð) 7.9.2011 kl. 17:42

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Einhver mistök í þessari frétt Hvorki Jón Baldvin né Gísli Baldvinsson eru í Ríkisstjórn. Enda hefur Jón Baldvinn deilt hart á þessa stjórn siðustu misserinn. Gísli er heldur ekki í Ríkisstjórn og hefur deilt á hana líka þegar við á.  Finnst að blaðamaður ætti að vita þetta.

Magnús Helgi Björgvinsson, 7.9.2011 kl. 18:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband