Píratar lama stjórnarandstöđuna

Óeining innan ţingflokks Pírata og vankunnátta í pólitík lamar starf stjórnarandstöđunnar. Ţetta má lesa úr umfjöllun DV og Eyjunnar um sundrunguna sem Píratar standa fyrir á alţingi.

Pólitísk óreiđa og innbyrđis hjađningavíg eru samofin Pírötum. Á síđasta kjörtímabili var ađ kalla til vinnustađasálfrćđing í ţriggja manna ţingflokk Pírata.

Á međan Píratar eru í stjórnarandstöđu er ríkisstjórninni óhćtt - og almenningi líka.


Falsdauđi 80 Íslendinga

Árlega deyja 80 Íslendingar vegna loftmengunar, segir Umhverfisstofnun. Hćngurinn er sá ađ líkin vantar.

Ţegar Íslendingur deyr er gefin út dánarorsök. Ríkisstofnun, sem vill láta taka mark á sér, hlýtur ađ styđjast viđ traust gögn um dánarorsök til ađ undirbyggja fullyrđingu um árlegan dauđa 80 Íslendinga af völdum svifryks. Ţessi fjöldi dauđra stappar nćrri faraldri.

En tala Umhverfisstofnunar um 80 dauđa Íslendinga er ekki fengin úr dánarskýrslum. í skjali á heimasiđu stofnunarinnar kemur fram ađ talan er ágiskun. Ţar segir á bls. 8 ađ 80 dauđsföll eru talin

útfrá styrk loftmengunarefna, lýđfrćđilegum upplýsingum og niđurstöđum rannsókna um sambandiđ milli loftmengunar og heilsufarsbrests.

Á hversdagslegu máli heitir ţetta ađ ljúga međ ţvćttingi. Ţađ liggja fyrir tölur um dánarorsakir hjá heilbrigđisyfirvöldum, t.d. landlćkni. En ţćr tölur eru ekki notađar heldur einhverjar ótilgreindar rannsóknir úti í hinum víđa heimi um ađ 80 einstaklingar deyi á Íslandi vegna svifryks.

Til hvers er leikurinn gerđur?

 

 


mbl.is 80 ótímabćr dauđsföll vegna svifryks
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Trump og Pútín: óvinaímyndir og sterkir menn

Óvinaímynd auđveldar skilning, ekki síst í alţjóđastjórnmálum. Í kalda stríđinu voru Sovétríkin skýr óvinaímynd vestrćnna ţjóđa. Sovétríkin stóđu fyrir alrćđi kommúnisma gegn vestrćnu lýđrćđi (sem, raunar, stóđ ekki alltaf undir nafni).

Fall Sovétríkjanna fyrir aldarfjórđungi skóp skilyrđi sögulegra sátta ţar sem arftaka Sovétríkjanna, Rússlandi, yrđi hleypt inn í samfélag vestrćnna ţjóđa. Svo fór ekki. Eftir áratug upplausnar í Rússlandi tók völd ţar mađur ađ nafni Pútín - og hefur haldiđ ţeim síđan.

Pútín hefur stjórnađ Rússlandi í tíđ fjögurra Bandaríkjaforseta: Clinton, Bush yngri, Obama og nú Trump. Af ţessum fjórum er Trump líkastur Pútín; afgerandi og umdeildur.

Vonir stóđu til ađ Trump og Pútín myndu loks grafa stríđsöxina, sem úreltist viđ fall Sovétríkjanna. Tvímenningarnir skiptust á skjalli á međan Trump stóđ í kosningabaráttu sinni á síđasta ári.

En óvinaímyndin, sem gerđi Bandaríkin og Rússland ađ andstćđingum ţótt efnislegar forsendur vćru ekki lengur fyrir hendi, tók á sig nýja mynd viđ sigur Trump. Hann var sagđur strengjabrúđa Pútín og á í vök ađ verjast á heimavelli vegna ásakana um ađ hafa orđiđ forseti međ stuđningi Rússa.

Sumir Bandaríkjamenn, til dćmis Paul Saunders og Stephen F. Cohen, telja ađ nýju óvinaímyndinni, sem haldiđ er á lofti, um ađ Trump sé handbendi Pútín, stórauki hćttuna af stríđi fyrir slysni á milli Bandaríkjanna og Rússlands.

Sterkir menn eru oft hégómlegir. Ţeir ţurfa reglulega ađ stađfesta ađ ţeir standi undir nafni. Ţeir taka stórar og afgerandi ákvarđanir í ţví skyni. Fyrirsjáanlegt handaband Trump og Pútín í Hamborg er ekki stór og afgerandi ákvörđun. En ţađ er ţó huggulegra ađ óvinaímyndir hittist augliti til auglitis og takist í hendur. 


mbl.is Trump og Pútín hittast í Ţýskalandi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 30. júní 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband