Árið sem fúll á móti varð überráðherra

Steingrímur Jóhann Sigfússon fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna kom úr tíu ára eyðimerkurgöngu í ár og varð yfirráðherra ríkisstjórnar sem ranglega er kennd við Jóhönnu Sigurðardóttur.

Stökkið sem heiðursfélagi fúll-á-móti-klúbbsins tók á árinu verður í minnum haft. Einn skugga ber þó á; Júdasarsamþykktin 16. júlí.

Gæludýr Steingríms J. segja umsóknina til Brussel djúpt plott til að einangra Samfylkinguna í íslenskri pólitík. Lítill angi af því plotti er að tæta fylgið af Samfylkingunni en halda Vg stöðugu. Síðasta skoðanakönnun Gallup segir ríkisstjórnarflokkana jafn stóra, sem þýðir að fólk yfirgefur Samfylkinguna í hrönnum.

Vonandi verður að ári hægt að mæra Steingrím Jóhann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

AHHAHAH HAHAHAHHAHAHA HAHAHAHAH.....já.....og thú ert fullordin bladamadur?

AHHAHAH HAHAHAHA AHHAHAHAHAHHAHA. 

Passadu bara Palli minn ad plottid sprengi ekki kollinn thinn.

Gummi (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 15:10

2 identicon

Steingrímur hefur komið sterkur inn.

Enda er hann einn heilsteyptasti og óspilltasti stjórnmálamaður landsins.

Ég tek fram að ég er ekki VG maður.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 16:32

3 Smámynd: Ómar Bjarki Smárason

Millinafnið hjá fjármálaráðherra gæti nú verið sótt langt aftur í ættir til einhverrar forömmunnar og ætti kannski í raun að vera "Jóhann-a"....?

Ómar Bjarki Smárason, 31.12.2009 kl. 16:41

4 Smámynd: Elle_

Steingrímur J. Sigfússon hefur blekkt og logið endalaust siðan í apríl, sl. og það kallast ekki að vera heilsteyptur og óspilltur.

Elle_, 31.12.2009 kl. 17:58

5 identicon

Tek undir með ElleE, Steingrímur hefur blekkt og logið nánast stöðugt.

Í ljósi þessa finnst mér alveg merkilegt hve margir halda enn tryggð við Vg. Er því þannig farið með kjósendur Vg og Sf að þótt þeir sjái og taki á trúi þeir ekki?

Menn eins og Steingrímur útskýra ekki í burtu að 2007 vildu þeir fá netlöggu, menn útskýra ekki í burtu einharða andstöðu við Icesave áður en menn komast í stjórn og snúast svo 180° þegar í stjórn er komið. Menn útskýra ekki í burtu að vera ótrúr loforðum varðandi ESB. Þessi ósannsögli Vg varðandi ESB kostar þjóðina 2 milljarða (kostnaður við aðildarviðræður). Er það ekki u.þ.b. sú upphæð sem klipin var af LSH? 2 milljarðar í sprell sem vitað er að þjóðin er á móti. Ég hélt að við værum blönk og hefðum ekki efni á að spreða milljörðum í eitthvað sem engu skilar öðru en furðu og hugsanlega pirringi í Brussel.

Jon (IP-tala skráð) 1.1.2010 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband