Ríkisstjórnin eða þjóðin - síðasta tækifæri ÓRG

Heimadrama forseta Íslands gerir ekki annað en að undirstrika að valið stendur á milli ríkisstjórnarinnar og vilja þjóðarinnar þegar Ólafur Ragnar Grímsson tekur afstöðu til þess hvort hann synjar staðfestingu laganna um ríkisábyrgð á Icesave-reikningunum.

Ólafur Ragnar hefur í frammi leikræna tilburði til það þykjast eiga erfitt með að gera upp hug sinn.

Gamli formaður Alþýðubandalagsins er hins vegar búinn að vita lengi að hann mun standa frammi fyrir þessum kosti.

Ólafur Ragnar stendur frammi fyrir síðasta tækifærinu til að bæta fyrir tjónið sem hann hefur valdið þjóðinni í forsetatíð sinni.


mbl.is Forseti tekur sér frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Íslenski þrælinn stígur ekki í vitið, og það sama má nú segja um flesta kjósendur VG.  Sá FL-okkur hefur aldrei gáfulegar lausnir fram að færa, í raun bara drasl. Samspillingin er svo bara stórhættulegur EB flokkur.  Formaður VG talaði allt öðru vísi fyrir hrun, en snérist svo eins og VINDHANNI 360 gráður, í flest öllum málum, það er afrek út af fyrir sig.  Þjóðin & alþingi hefur sýnt fram á vilja í sumar að við viljum greiða tengt Icesave þó okkur beri í raun ekki lagaleg skylda til þess, þá viljum við axla "pólitíska & siðferðislega ábyrgð á okkar glæpamönnum" - en SteinFREÐUR & Svavar sömdu svo illa af sér að hér verður "frostavetur næstu 20 árin með tilheyrandi fátæk" - svo kalla þessir aular sig "Norræna velferðastjórn" - klækastjórn hjá vinstri mönnum, það liggur við að maður æli, aulaskapur þessa liðs er ótrúlegur.  Þráinn Bertelsson talaði um fyrir rúmu ári síðan að það væri aumingjarskapur hjá ríkisstjórninni að vera á hjánum fyrir nýlenduveldum UK & Hollendinga.  Svo segir hann nú (á hnjánum) að lengra verði ekki komist.  Þetta lið er óborganlegt og leiksýningar þær sem þeir setja upp á alþingi eru yfirleit til háborinnar skammar. 

Óli grís kan "klækastjórnmál & lýðskrum" enda vinstri maður í húð & hár.  Óli var UMBOÐSMAÐUR útrásarskúrkanna og það fer vel á því að maður með "skítlegt eðli" samþykki þessi (ó)lög, gegn 70% vilja þjóðarinnar, það er ekki gjá, bilið er of stórt til að vera gjá, í raun bara "himinn & haf milli þings & þjóðar" enda skilur ekki þjóðin þá ÖMURLEGU verkstjórn Jóhönnu & SteinFREÐS í þessu skelfilega máli.  Geta íslenskra stjórnmálamanna er til skammar, ef þetta lið væri að vinna fyrir einkafyrirtæki þá væri búið að reka það á staðnum.  Óli grís á að SAMEINA þjóðina, en leppalúði er snillingur í að SUNDRA þjóðinni.  Ég segi nú bara um okkar skítapakk - sorry - okkar stjórnmálamenn "helvítis fukking fukk".

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 31.12.2009 kl. 12:34

2 identicon

Ég vildi óska þess að Steingrímur hefði snúist 360 gráður frá því hann var í stjórnarandstöðu. Þá hefði hann ekki verið fulltrúi fjármagnsaflanna sem hann þóttist hata fyrir kosningar og hefði líklega ekki komið með þennan nauðasamning.

Því miður snerist hann bara 180 gráður frá fyrri afstöðu sinni. Ef þú snýst 360 gráður ertu kominn í sömu stöðu og þú varst í áður en þú byrjaðir að snúast. Smá heilbrigð skynsemi.

Annars gleðilegt ár.

Theódór Norðkvist (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 13:11

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég mun ekki trúa því að óreyndu að forseti skrifi undir þetta dæmalausa rugl..

Óskar Arnórsson, 31.12.2009 kl. 13:12

4 identicon

Sæll Páll.

Ég hallast að því sem þú segir þetta er bara sýndarmennska hjá honum. Hann er nokkuð góður í svoleiðis æfingum.

Hann mun skrifa undir þetta með "trega" og síðan mun hann bæta við einhverju ótrúlegu orðagjálfri eins og honum er einum lagið.

En þar með mun hann missa af síðasta tækifærinu til þess að bæta fyrir frammistöðu sína í embættinu, hin síðari árin.

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 15:14

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Einn séns og skrifa ekki undir þá tórir hann!

Sigurður Haraldsson, 31.12.2009 kl. 21:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband