Eftirmál útrásar

Þökk sé erlendum stofnunum verður ekki hægt að sópa undir teppið óhreinindum sem útrásin skilur eftir sig. Tilburðir útrásarmanna og handlangara þeirra til að útskýra hrunið á Íslandi með falli Lehmans banka bera veruleikafirringu þeirra vitni.

Útrásarliðið hafði ekki snefil af sómakennd og komst upp með í krafti auðs og valda að ganga ljúgandi um götur og torg með þann boðskap að áræðni og snilli skýrði velgengnina. Í reynd voru það blekkingar og lögbrot sem lögðu grunninn að veldi útrásarauðmanna.

Lærdómur af útrásinni er margþátta og það tekur tíma að skilja samhengið.


mbl.is Ásakanir um peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Þór Haraldsson

Þetta þarf auðvitað að rannsaka vel ofan í kjölinn hvort t.d. Björgólfs feðgar & bankarnir þeirra hafi snúist mikið um "peningaþvott fyrir mafíuna....!"  En manni fyndist ekkert ólíklegt að þannig hafi í pottinn verið búið hjá Björgólfs feðgum.  Það fer bara "hrollur um mann....!"  Gylfi viðskiptaráðherra tala um að íslenskir bankamenn hafi verið þeir verstu í heiminum, en kannski voru þeir í raun bara "bestu ræningjar Evrópu" - frekar augljóst að þeir hafa náð að setja Heimsmet í því að "ljúga & blekkja fólk & fjárfesta hérlendis & erlendis til að láta sig fá pening - pening sem aldrei stóð til að afhenda tilbaka....!"  Þessir aðilar voru svo sannarlega með "einbeita brotarvilja í öllu sem þeir tóku sér fyrir hendur - skömm þeirra er því miður ævarandi...!" Tek hjartanlega undir þau orð þín Páll að: "Útrásarliðið hafði ekki snefil af sómakennd ..."  Bara siðblindir einstaklingar haga sér eins og þetta lið hefur gengið fram, þetta eru í raun brennuvargar sem skilja eftir sviðna jörð alstaðar þar sem þeir stíga niður fæti - sorglegt lið vægast sagt..!

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is) 

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Jakob Þór Haraldsson, 25.10.2009 kl. 11:41

2 identicon

Þessu hefur alla tíð verið haldið fram innan viðskiptaheims í Betlandi allt frá upphafi innrásar íslensku auðrónana, sem þeir ma. bentu á að fjárfestingaheimska þeirra væri með slíkum einæmum á fyrirtækjum sem þeir keyptu á margföldu yfirverði, að það þyrfti ekki kjarnorkverkfræðing til að sjá að ekki væri verið að reyna að ná árangri í neinu nema peningaþvætti fyrir rússnekar mafíur í gegnum íslenska banka.  Ekkert hefur verið gert af íslenskum yfirvöldum til að kanna sannleiksgildi þessara fullyrðinga.  Ekki einusinni þegar rússneskur mafíuforingi hélt þessu fram fyrir töluverðu síðan í breskum fjölmiðlum, og með þekktum viðbrögðum auðrónana hérna sem stýra allri umræðunni í Baugsmiðlunum með Mbl. meðtöldu þá í eigu Björgólfsmafíunnar.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 25.10.2009 kl. 12:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband