200 íslenskir fjölmiðlar: pennastrik á RÚV

Opinberar tölur segja 200 fjölmiðla starfa hér á landi. Bæði væru þeir fleiri og burðugri ef RÚV hyrfi af markaði. Á hverju ári fær ríkisfjölmiðillinn tæpa 6, já sex, milljarða króna af skattfé almennings. Að auki tekur RÚV tæpa 3 milljarða árlega í auglýsingatekjur.

Hvað þarf þjóðin marga fjölmiðla? Enginn veit þá tölu. Ekki frekar en að fyrir liggi hvaða tilgangi fjölmiðlar þjóni. Eðlilegast er að fjölmiðlar vaxi, dafni og deyi án atbeina ríkisvaldsins. Fyrir liggur að almannahag er illa þjónað með RÚV sem ráðandi fjölmiðil. 

Ef RÚV yrði lokað með einu pennastriki rynni upp gósentíð fjölmiðla. Auglýsingafé upp á þrjá milljarða lægi á lausu. RÚV-frekjan í dagskrárvaldi opinberrar umræðu hyrfi á einni nóttu. 

Beint samhengi er á milli dagskrárvalds RÚV og spilltra blaðamanna sem tóku lögin í sínar hendur er þeir véluðu um byrlun og gagnastuld til að sækja fréttir þegar hallaði á RÚV í umræðunni. Fimm blaðamenn eru sakborningar í lögreglurannsókn. Efstaleiti var aðgerðamiðstöðin í byrlunar- og símastuldsmálinu. Tvö önnur reginhneyksli íslenskrar fjölmiðlunar síðasta áratug eru runnin undan RÚV-rifjum: Seðlabankamálið og Namibíumálið.

Stefán útvarpsstjóri Eiríksson hefur losað sig við spilltu blaðamennina einn af öðrum. En útvarpsstjóri hefur aldrei gert grein fyrir aðkomu RÚV að glæpnum gegn Páli skipstjóra Steingrímssyni. Stefán á eftir að gefa lögregluskýrslu um sína vitneskju.

RÚV er faglega og siðferðilega gjaldþrota stofnun. Ríkið heldur druslunni gangandi með sex milljörðum á ári. Íslensk fjölmiðlun yrði stórum heilbrigðari þegar sjoppunni á Glæpaleiti verður loksins lokað.

 

 


mbl.is Lagt til að RÚV fari af auglýsingamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Sammála.

Ragnhildur Kolka, 8.3.2024 kl. 08:47

2 Smámynd: Gunnlaugur Hólm Sigurðsson

Versta leið til að ná til neytenda er að auglýsa á lokuðum miðlum þar sem neytendur þurfa að borga til að neyðast til að sjá auglýsingar, Besta leiðin er að auglýsa á opnum miðli eins og RUV. Að taka RUV af auglýsinga markaði er rugl og ein leið til að ráðast á innviði Íslands. 

Gunnlaugur Hólm Sigurðsson, 8.3.2024 kl. 16:57

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Fólk borgar þessa bestu leið og vonar að eitthvað létti lund þess,þó ekki væri nema fyrir tíeyring við að opna fyrir "vikan með Gísla Marteini".Gleðigáski flytjenda endist allan sýningartímann,meðan ekkert er svo mikið sem broslegt að horfa og komið að lendingartíma.

Helga Kristjánsdóttir, 9.3.2024 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband