Stefán ţýfgađi Sigríđi Dögg um Airbnb-skattsvikin

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri fundađi međ Sigríđi Dögg Auđunsdóttur fréttamanni RÚV og formanni Blađamannafélags Íslands um stöđu hennar sem fréttamanns. Tilefni fundarins voru fréttir um skattsvik Sigríđar Daggar sem hún viđurkenndi međ Facebook-fćrslu 11. september síđast liđinn.

Fréttamađurinn stundađi umfangsmikla útleigu húsnćđis til ferđamanna í gegnum Airbnb-bókunarkerfiđ. Útleigan var stunduđ í  miđborg Reykjavíkur, Suđurgötu 8, alls fjórar íbúđir međ 28 svefnplássum. Líklegar leigutekjur Sigríđar Daggar eru um eđa yfir 100 milljónir króna sem hún gaf ekki upp til skatts.

Eftir ađ upp komst gerđi Sigríđur Dögg sátt viđ skattrannsóknastjóra líkt og um minniháttar skattalagabrot vćri ađ rćđa. En 100 milljón króna skattsvik teljast meiriháttar brot.

Sigríđur Dögg, fréttamađur RÚV og formađur stéttafélags blađamanna, neitar ađ tjá sig viđ fjölmiđla um máliđ og hefur ekki upplýst umfang skattsvikanna og forsendur fyrir sáttinni viđ skattrannsóknastjóra.

Á stjórnarfundi RÚV ţann 27. september var Stefán Eiríksson útvarpsstjóri spurđur um málefni Sigríđar Daggar. Stefán gerđi stjórnarmönnum grein fyrir ađ hann hafi átt fund međ fréttamanninum. Sagt er frá upplýsingagjöf til stjórnarinnar í dulkóđun í fundargerđ sem nýlega var birt á heimasíđu RÚV. Dulmáliđ er svohljóđandi:

b. Fjölmiđlaumfjöllun um starfsmann RÚV

Útvarpsstjóri var spurđur um umfjöllun í fjölmiđlum um starfsmann félagsins ţar sem komu fram ásakanir á hendur viđkomandi. Útvarpsstjóri kvađst hafa rćtt viđ starfsmanninn og taldi ekki ţörf á ţví ađ máliđ yrđi skođađ nánar.

Augljóst er af lođnu orđalagi ađ máliđ er ofurviđkvćmt á Efstaleiti. Ef allt vćri međ felldu hefđi Stefán upplýst máliđ til fulls, lagt fram gögn um skattsvik fréttamannsins og útskýrt ađ skattalagabrot upp á um eđa yfir 100 milljónir króna gerir fréttamann RÚV ekki vanhćfan ađ fjalla um afbrot annarra í fréttum. 

Trúverđugleiki RÚV er í húfi. Allar fréttir á RÚV er varđa lögbrot verđur ađ meta í ţví ljósi ađ ríkisfjölmiđillinn telur sjálfsagt ađ starfsmenn RÚV séu stađnir ađ lögbrotum án ţess ađ ţađ ţyki tiltökumál. En fréttastofa RÚV fer mikinn ţegar öđrum en innherjum Efstaleitis verđur á í messunni.

Viđbrögđ RÚV viđ skattsvikamáli Sigríđar Daggar eru til marks um tvöfalt siđgćđi. RÚV fjallar einatt og iđulega um lögbrot annarra, jafnvel grun um lögbrot, en sópar undir teppiđ fréttum af afbrotum eigin starfsmanna. Međ orđum útvarpsstjóra: lögbrot fréttamanna RÚV ţarf ekki ađ ,,skođa nánar." 

Ţegar fréttamenn RÚV krefja mann og annan svara um eitthvađ sem viđmćlendur vilja láta kyrrt liggja er komiđ skothelt viđkvćđi. Sumt ţarf ,,ekki ađ skođa nánar." Máliđ dautt.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband