Pírati: Grikkland er ruslahaugur

Arn­dís Anna þingmaður Pírata segir Grikkland ruslahaug. Mannfjandsamlegt sé að senda börn þangað.

Tilfallandi höfundur hefur ekki komið til Grikklands en þekkir nokkra sem hafa sótt heim forna menningarríkið og láta vel af. Þingmaður Pírata virðist telja sig vita betur.

Ef hugur fylgir máli hjá Arndísi Önnu ætti hún að bjóða grísku þjóðinni hæli á Fróni. Þingmanni og sálufélögum yrði ekki skotaskuld að bjarga Grikkjum frá vanþrifum líkt og flóttamönnum heimsbyggðarinnar.

Flóttamenn á heimsvísu eru 100 milljónir, Grikkir ekki nema 10 milljónir.

Mannkynsfrelsarinn á alþingi Íslendinga er sérfræðingur í góðverkum á kostnað annarra.

 

 


mbl.is Tókust á um „ruslahaugana í Grikklandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband