2021: Framsókn til gamla Íslands

Framsóknarflokkurinn vann kosningasigur sl. haust, jók fylgið um 6,6 prósent. Aðeins tveir aðrir flokkar á alþingi bætti við sig, Flokkur fólksins og Viðreisn, báðir með innan við tvö prósent fylgisaukningu. Aðrir töpuðu.

Sigur Framsóknar breytti pólitískri orðræðu á Fróni, án þess að eftir því væri tekið. Um langan aldur var Framsókn tákn íhaldssemi, að ekki sé sagt afturhalds. 

Vinstriflokkar sáu í Framsókn kyrrstöðu, dreifbýlishyggju og tortryggni gagnvart því sem  kallast efnahagslegt og félagslegt frjálslyndi. Efnahagslegt frjálslyndi er frjálshyggja og félagslegt wokeismi. Tvenndin fer saman í alþjóðahyggju sem er í algerri andstöðu við þjóðhyggju Framsóknar.

Frjálslynda vinstrið er með böggum hildar eftir sigur Framsóknar. Helga Vala Helgadóttir þingflokksformaður Samfylkingar segir í grein í Morgunblaðinu stærstu ,,heilsu­far­svá sam­tím­ans" vera geðheilbrigði. Yfirvarp Helgu Völu er alþjóðakófið frá Kína en það er íslenska framsóknarkófið sem hún óttast.

Draumur Helgu Völu um samstjórn Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar undir merkjum alþjóðlegs frjálslyndis varð að engu í haust. Varaáætlunin um alþjóðavædda vinstristjórn með Vinstri grænum, sósíalistum og Pírötum er rjúkandi rúst. Maður þarf ríkisstyrkta sálfræðihjálp af minna tilefni.

Sigur Framsóknar var sigur gamla Íslands sem er orðið þreytt á opnum landamærum frjáls innflutnings útlendrar vitleysu, svo sem woke, veiru og menguðu kjöti.

Gamla Ísland sótti í sig veðrið á nýliðnu ári. Það er vanmetnasta frétt ársins 2021.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Valsson

Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur boðberi frelsis og framvörður fullveldis Íslands þó svo vilji flokksmanna eins og hann kemur fram í ályktunum landsfunda segi annað. Einungis 2 núverandi þingmenn flokksins höfnuðu framsali á fullveldinu til ESB með innleiðingu orkupakkanna og Arnar Þór Jónsson komst ekki á þing. Það var því ekki að ástæðulausu að stofnað var Félag sjálfstæðismanna um fullveldismál innan xD en sá gjörningur mætti mikilli mótstöðu innan flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn stendur ekki lengur undir nafni, er orðið samsafn af laumu-ESB sinnum og eiginhagsmunapotirim Fullveldissinnar hafa þvi fáa valkosti.

Júlíus Valsson, 2.1.2022 kl. 11:33

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Já Júlíus

Því miður er eitthvað afturhvarf til þjoðlegra gilda hjá okkur sem lýsir sér í þeví að fólkið kaus Framsókn. Sjálfstæðisflokksurinn þarf að fara að vanda sig 

Halldór Jónsson, 2.1.2022 kl. 17:04

3 Smámynd: Júlíus Valsson

Stóra spurningin er: Hvað snéri Sigurði Inga til fylgis við 3. orkupakka ESB?

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/11/17/vill_nyta_undanthagur_fra_orkupakkanum/

Júlíus Valsson, 2.1.2022 kl. 17:33

4 Smámynd: rhansen

Aldrei verið eitt orð að marka fra SINGA  svo það var  samkv vana með o3 orkupakkann 

rhansen, 6.1.2022 kl. 18:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband