Ótti, veira og vísindi

Samfélög grípa til sóttvarna af ótta við Kínaveiru og afbrigði hennar. Óttinn er við afleiðingarnar af óheftri útbreiðslu. Helstu afleiðingar eru ótímabær dauði, einkum aldraðra og langveikra, veikindi til lengri eða skemmri tíma og í þriðja lagi álag á heilbrigðiskerfi.

Útbreiðsla, dánartíðni og sjúkrahúsinnlagnir eru mældar með tölum og þannig séð ,,vísindalegar" staðreyndir. Vísindalegar staðreyndir eru aftur margar, sumum er hampað á meðan aðrar liggja í láginni.

En hvernig er ótti mældur? Það er ekki til neitt sem heitir vísindalega skynsamlegur ótti. Vitanlega eigum við í forðabúri menningarinnar hugmyndir um varkárni;  að betri sé krókur en kelda og að allur sé varinn góður. Þá búum við, sem betur fer, að ríkri samhygð. Að við sem erum sæmileg til heilsunnar leggjum okkar af mörkum til að aldraðir og langveikir geti um frjálst höfuð strokið í samfélaginu. 

Burtséð frá veiru og vísindum verða einhverjir fyrir ótímabærum dauða, áfram veikist fólk og leggst inn á sjúkrahús. Ótti getur verið eðlilegt viðbragð við aðsteðjandi ógn. En ótti getur líka verið sjúklegur.


mbl.is Ómíkron miklu vægara en Delta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þessi á eftir að lengjast um mörg línubil,þegar menn fara að tilnefna keldur og frámunalega sjaldgæfan ótta- t.d.við nokkuð sem er ekki til? 

Helga Kristjánsdóttir, 15.12.2021 kl. 08:32

2 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Nú eru Bretar að tala um það sama og Kári um daginn; Það þarf sprautu á 3-4 mánuða fresti, annars blikkar rautt ljós í bólusetningapassanum..

Guðmundur Böðvarsson, 15.12.2021 kl. 09:45

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Eiga þeir ekki við kassanum Guðmundur?

Helga Kristjánsdóttir, 15.12.2021 kl. 14:51

4 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég get tekið undir með mörgu sem Páll hefur fram að færa, en þetta stöðuga tal um Kínaveiru er dálítið þreytt. Kínverjar eru reyndar margir helst á þeirri skoðun að þessi veira eigi rætur að rekja til Bandaríkjana - kannski líkt og Spánskaveikin?

Jónatan Karlsson, 15.12.2021 kl. 17:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband