Kjarninn og Stundin þjófsnautar í glæpnum gegn Páli skipstjóra

Útgáfurnar Stundin og Kjarninn birtu í morgunsárið 21. maí fréttaskýringar úr gögnum stolnum úr snjallsíma Páls skipstjóra Steingrímssonar þrem vikum áður. Birtingartími var skipulagður af þriðja aðila. Páll var meðvitundarlaus á gjörgæslu þegar síma hans var stolið.

Í rammagrein í Kjarnanum, sem fylgir fréttaskýringunni, segir:

Í svari sem Arnar Þór Stefánsson, lögmaður á Lex, sendi fyrir hönd Samherja síðdegis í gær kom fram að fyrir lægi að þau gögn sem umfjöllun Kjarnans byggir á hafi fengist með innbroti í síma og tölvu Páls Steingrímssonar, starfsmanns Samherja. Páll hafi kært innbrotið og meðferð gagnanna til lögreglu fyrir fáeinum dögum þar sem málið bíði lögreglurannsóknar.

Í framhaldi skrifar ritstjóri Kjarnans, Þórður Snær Júlíusson: ,,Ábyrgðarmenn Kjarnans vilja taka fram að umrædd gögn sem eru grundvöllur umfjöllunar miðilsins bárust frá þriðja aðila. Starfsfólk Kjarnans hefur engin lögbrot framið..." 

Böndin berast að RÚV.

Stundin gerir ekki sambærilega grein fyrir hvernig útgáfan komst yfir stolin gögn. Í Stundinni segir ,,Samskipti sem Stundin hefur séð sýna hvernig..." og ennfremur ,,Í skráningarupplýsingum skjala sem Stundin hefur skoðað kemur fram að Arna – eða í það minnsta tölvan hennar – sé höfundur þeirra." (Arna er lögfræðingur Samherja, innsk. pv) 

Þriðji aðilinn sem úthlutaði Stundinni og Kjarnanum gögnin getur ekki verið annar en RÚV. Engir aðrir en starfsmenn RÚV hafa í senn yfirsýn yfir málið og fagkunnáttu til að brjótast inn í síma Páls, sækja gögnin og lesa úr kóða sem upplýsir frumútgáfur skjalanna. RÚV var svo umhugað að fá ,,rétta" fréttaskýringu að Aðalsteinn Kjartansson var sendur á Stundina 4 dögum áður en síma Páls var stolið, gagngert til að vinna úr stolnu gögnunum.

Töluverð vinna er lögð í að rekja einstök skjöl, sbr. það sem segir um skráarupplýsingar skjala í umfjöllun Stundarinnar. Á Glæpaleiti er það ekki einn starfsmaður sem hefur séð um úrvinnslu, líkt og útvarpsstjóri vill vera láta, heldur tveir eða þrír.

Fyrir liggur bein játning ritstjóra Kjarnans að útgáfan sé þjófsnautur. Kringumstæðurök hníga öll í þá átt að sama gildi um Stundina. Höfuðsökin liggur þó á Glæpaleiti. Þar voru aðgerðir skipulagðar, útfærðar og tímasettar.

Lögreglurannsókn á eitrun Páls skipstjóra og stuldi á snjallsíma hans er svo gott sem lokið. Ákærur verða gefnar út um eða eftir áramót. Og enn er ekki auglýst eftir fréttastjóra RÚV.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Þetta eru svakalegar ásakanir.

Jónatan Karlsson, 14.12.2021 kl. 10:25

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta er rosalegt, eiginlega ótrúlegt

Halldór Jónsson, 14.12.2021 kl. 14:20

3 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Geðveikisleg heift er að baki þessa verknaðar.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 14.12.2021 kl. 14:49

4 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Ágæti höfundur virðist hafa hér mun meiri aðgang að þeim gögnum og því sem fer fram á gólfi hjá rannsóknaraðilum hjá þeim sem stýra Lögreglu hér á landi.

Höfundur kýs svo að deila sinni visku og þekkingu hér. 

Er þá höfundur hér "þjófsnautur" í þeim skilningi að hann [e. höfundur] fer hér fram með upplýsingar sem ætla má að séu lekið til höfundar og hann birtir hér ? 

Sigfús Ómar Höskuldsson, 14.12.2021 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband