Fréttastjóri RÚV: engin auglýsing

Fyrir mánuði var tilkynnt að Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri RÚV hættir störfum um áramót.

Enn hefur staðan ekki verið auglýst. Aðeins þrjár vikur eru til áramóta.

Stefán útvarpsstjóri segir ekki neyðarástand á RÚV. En hann getur samt ekki auglýst eftir fréttastjóra.

Lögreglurannsókn stendur yfir á starfsháttum RÚV og aðkomu stofnunarinnar að eitrun og stuldi.

Stefán útvarpsstjóri veit ekki enn hvaða starfsmenn Efstaleitis liggja undir grun og sæta e.t.v. ákæru.

Það er ástæðan að staða fréttastjóra er ekki auglýst.

En þetta má ekki segja upphátt. Glæpir fjölmiðla sæta fréttabanni. Blaða- og fréttamenn stunda ekki upplýsingamiðlun til almennings þegar starfsbræður og systur eiga í hlut. Í Norður-Kóreu standa fjölmiðlar vörð um leiðtoga landsins. Á Íslandi eru fjölmiðlar samtaka um að fjalla ekki um glæpi og spillingu í eigin ranni.

Líkt og í Norður-Kóreu eru fjölmiðlar á Íslandi á framfæri ríkisins. Ef ekki væri fyrir Tilfallandi athugasemdir yrðu engar fréttir sagðar af lögbrotum og spillingu í skúmaskotum valdsins. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Bergz

Kannski svipað verði gert og með ráðningu Boga Ágústssonar 1988?

Snorri Bergz, 6.12.2021 kl. 06:37

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Sækir þú bara ekki um!!

Sigurður I B Guðmundsson, 6.12.2021 kl. 13:29

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Rakel brosir eins og Fjallkonan og yljar öllum.

Helga Kristjánsdóttir, 7.12.2021 kl. 05:53

4 Smámynd: Kristinn Sigurjónsson

Það er á fleiri flötum þar sem hlutdrægni fjölmiðla sameinast í, og það er raunverulegar ástæður  fyrig hlýnun jarðar, en samkvæmt vísindum þá hefur CO2 engin áhrif á það, en það er möguleiki að víðtækt þekkingaleysi sé ástæðan, en það er líka algjör þöggun um ofbeldi gegn karlmönnum, sem samkvæmt öllum hlutlausum rannsóknu er jafnmikið og því sem karlmenn eru gerendur.  Hér er ekki hægt að bera við þekkingaleysi heldur bara algjöra hlutdrægni því það linnir ekki umræðum af konum sem fórnarlömb ofbeldis af hendi karla.

Kristinn Sigurjónsson, 7.12.2021 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband