Hagsmunalandið Ísland - og óseðjandi metnaður

Seðlabankastjóri, í lélegri vörn fyrir svikula embættismenn, sagði landinu stjórnað af hagsmunahópum. Það þóttu fréttir, mestar hjá þeim sem þykjast ekki vita - eða vilja ekki vita - hvernig kaupin gerast á eyrinni.

Ísland er hagsmunaland og hefur alltaf verið. Frá landnámi var hér ættarveldi. Einar sjö ættir börðust um völdin á Sturlungaöld. Norska konungsvaldið reri undir, gerði bandalög þvers og kruss á ættirnar. Kirkjuvaldið, sem spratt upp úr goðavaldi ættanna, reif sig laust og gerði bandalag við konungsvaldið til höfuðs höfðingjaættunum. Fyrrum höfðingjaættir urðu staðarhaldarar kirkjunnar annars vegar og hins vegar embættismenn konungs.

Kirkjuvaldi og konungi laust saman 300 árum eftir Sturlungaöld. Með siðaskiptunum hafði konungsvaldið betur. Á nýöld stunduðu betri bændur og kirkjuhöfðingjar ábatasöm viðskipti við Englendinga og síðar Þjóðverja í trássi við konung. Því veseni lauk með einokuninni í byrjun 17. aldar. Danskir kaupmenn og innlendir leiksoppar urðu máttugir ásamt hálfdönsku yfirvaldi.

Hraðspólum inn í 20. öldina og sjáum fjórflokkinn taka á sig mynd fyrir miðja öldina. Undir yfirskini lýðræðis átti fjórflokkurinn landið og miðin. Ef einhver vildi verða barnakennari í Reykjavík þurfti hann flokksskírteini í Sjálfstæðisflokknum. Ég ólst upp í Keflavík. Ef menn sáu fyrir sér vinnu í tollinum á flugstöðinni á Miðnesheiði þurfti velvild krata - Alþýðuflokksins - sem útbýtti þeim gæðum.

Ekki svo að skilja að eymd og volæði hafi fylgt fjórflokknum. Öðru nær. Velmegun og hagsæld jókst alla 20stu öldina  almenningi til hagsbóta. En hvert sem litið var voru hagsmunir.

Og þannig er það enn. Fjórflokkurinn er fyrir bí en ekki hagsmunir. Þeir eru fleiri og dreifðari. RÚV er hagsmunamiðstöð starfsmanna á Efstaleiti. Embættismenn hafa komið ár sinni svo vel fyrir borð að fái þeir ekki laust embætti geta þeir farið í mál við ríkið og fengið einar 20 til 30 milljónir í bætur. Verkalýðsfélög og lífeyrissjóðir eru hagsmunabandalög sem sjá um sína. Og svo má áfram telja.

Til að skilja Íslendinga, bæði fyrrum og nú til dags, þarf að hafa tvennt á hreinu. Í fyrsta lagi hagsmuni, samanber sem að ofan segir. Í öðru lagi metnað einstaklinga sem er hóflegur í sumum en óseðjandi hjá öðrum.

Kolbeins saga Óttarssonar Proppé, Helga saga Seljan, Gunnars saga Smára, Ingu saga Sæland, Þorvalds saga Gylfasonar og saga Rósu B., eru nokkrar samtímasögur, valdar af handahófi, til að vekja athygli á fólki sem getur ekki hugsað sér heiminn án þess að það sjálft sé í aðalhlutverki. Að breyttu breytanda gæti þetta fólk verið úr Sturlungasögu. 

Hagsmunir og metnaður. Sturla Þórðarson og óþekktir höfundar Íslendingasagna kunnu skil á gangverki mannlífsins.


mbl.is Umdeilanlegt að höfða mál gegn starfsmönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Þessi hugmynd, að gera opinberum starfsmönnum kleyft að ofsækja almenning, þeim sjálfum að skaðlaus hlýtur vera vitlausast hugmynd 2021 til þessa.

Ásgeir Jónsson hefur samt komið með ágæta punkta og komið nokkuð á óvart sem seðlabankastjóri,  en hann sýnir og sannar svo engum dylst að hann er sonur pabba síns og gamaldags kommi, með þessum skrifum sínum.

Íslensk tilvera er komin á mjög vondan stað með svona hugsand fábjána í flestum opinberum stöðum og obbi þingmann sjá ekki einu sinni fáránleikann í þessu.

Guðmundur Jónsson, 25.4.2021 kl. 13:45

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Opinberir starfsmenn eiga semsagt að geta ofsótt einstaklinga og fyrirtæki, undir merkjum þeirrar stofnunar sem þeir vinna hjá, án nokkurrar persónulegrar ábyrgðar. Þokkalegur andskoti, eða hitt þó heldur. 

 Ekki að undra að forsætisráðherfan taki undir og vinstra liðið allt, ásamt svíðreisn, syngi halelúja.

 Mann langar bara að æla.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 26.4.2021 kl. 00:14

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Mikið rosalega er maður farinn að lesa skakkt í manneskjur,vitandi að það er  ríkisstjórnin sem velur seðlabankastjóra og samkvæmt venju fylgja þeim ráðahag engin blóm í haga fyrir almenning. En hann byrjaði vel lækkaði vexti, mikilsháttar maður veldur engum áhyggjur; Svo! þangað til einhver ásakar starfsmann hans- þá hleypur í stjóra hagsældar,eigum við ekki að breyta  gangverki mannlífsins?   

Helga Kristjánsdóttir, 26.4.2021 kl. 03:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband