Flótti frá lágum vöxtum

Lágir vextir er orðnir vandamál. Til skamms tíma snerist umræðan um alltof háa vexti. Núna flýr fólk með fé sitt í steinsteypu heitir það í meðfylgjandi frétt.

Lækkun vaxta vegna farsóttar þjónaði þeim tilgangi að vinna gegn samdrætti. Aukin efnahagsumsvif, t.d. í fasteignaviðskiptum, fá einnig innspýtingu fjármagns sem annars færi í neyslu í útlöndum. Landinn ferðast ekki í kófinu.

Hlutabréf hækka í verði og aldrei er jafn mikið að gera og einmitt núna hjá iðnaðarmönnum sem breyta og bæta fasteignir með sólpöllum og viðbyggingum.

Líkur aukast á að kófið fjari út miðsumars eða þar um bil og við taki sterk efnahagsuppsveifla. Þá þarf að hækka vexti.


mbl.is Flýja í steinsteypuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband