Bjartir tímar ferðaþjónustunnar

Ef Ísland verður fremst þjóðríkja að koma böndum á útbreiðslu kórónuveirunnar verður landið ákjósanlegur áfangastaður útlendra ferðamanna. 

Skilvirkar smitvarnir og hröð aðlögun að síkvikum aðstæðum gæti einmitt komið Íslandi í fremstu röð.

Fjöldatúrismi liðinna ára verður ekki endurtekinn í bráð. En ferðaþjónusta mun áfram dafna með breyttu sniði og hóflegri fjölda.

Menn þurfa bara að líta á tækifærin en láta ekki ímyndað svartnætti buga sig.


mbl.is Ferðaþjónustunni lokað fram að jólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Það, Páll, fer eftir því hvað þessi ólöglegi innflytjandi, Wuhan-veiran, nær að áorka í Evrópu og víðar.

En þar hefur henni tekist að sameina hin ólíklegustu pólitísku öfl, þannig að fyrir framan Reichstaginn í Berlín marséruðu miðjumenn og ný-nasistar saman gegn samsteyptri-stjórnvalda-arfaleið Angelu Merkels.

Veiran virðist sameina miðjumenn og nýnasista gegn samsteypustöðvarstjórnmálum Merkels. Er þetta ekki yndislegt.

Það hitnar í kolunum og fólk virðist vera með annað á heilanum en að skreppa í kuldakast til Íslands.

Þetta á eftir að versna og versna í langan tíma, þarna úti. Evrópa er rétt að byrja Wuhan-veiru-ballið.

En skipafélög hafa það þó ágætt.

Ef ég væri Pútín myndi ég slá til núna.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2020 kl. 10:21

2 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Kínverska Wuhan-veiran er hinn fullkomni ólöglegi innflytjandi fyrir Þjóðverja (og fleiri þjóðir Evrópu) til að ná sér niðri á stjórnmálastéttinni, fyrir fyrri syndir hennar í þeim efnum.

Það mun gjósa - víða.

Gunnar Rögnvaldsson, 1.9.2020 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband