Sósíalismi gegn lýðræði

Lýðræðislega kjörnar sveitarstjórnir standa frammi fyrir óbilgjörnum kröfum Eflingarsósíalista um að sprengja upp launakerfi opinberra starfsmanna. Al­dís Haf­steins­dótt­ir formaður Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga: 

Okk­ur er ókleift að semja við þau þar sem kröf­ur þeirra eru langt um­fram það sem við höf­um samið um við aðra starfs­menn sveit­ar­fé­laga. Við erum búin að semja við rúm­lega 40 fé­lög og í þeim eru um 7.000 starfs­menn sveit­ar­fé­laga þannig að það er al­veg úti­lokað að við get­um með ein­hverj­um hætti samið um annað og miklu meira við Efl­ingu en við höf­um þegar samið um.

Efling er Reykjavíkurfélag en tekur börn í gíslingu í öðrum sveitarfélögum. Úrelt lög um verkalýðsfélög leyfa þessa háttsemi. Þetta fyrirkomulag er ótækt.


mbl.is Verkfall Eflingar hefst á hádegi í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Af hverju er ÚTBOÐSLEIÐIN ekki tekin meira upp hjá hinu opinbera?

Hvað myndi X stór hópur af fólki

(sem að innihélti 1-2 leikskólafræðimenntaða einstaklinga) 

vilja fá mikið fyrir að vinna X margar stundir á hverjum degi í X mörg ár?

Síðan þyrftu þau að skila inn TILBOÐUM Í LOKUÐU UMSLAGI.

=Þá kæmist á ákveðið JAFNVÆGI á milli framboðs, eftirspurnar og raungetu

eftir fólki sem að gæti annast börn.

Jón Þórhallsson, 5.5.2020 kl. 08:34

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

ÚTBOÐSLEIÐIN er mjög þekkt hjá smiðs-verktökum.

Af hverju gæti slík leið ekki virkað í leikskóla-starfinu?

Jón Þórhallsson, 5.5.2020 kl. 08:39

3 Smámynd: Benedikt Halldórsson

Svokallað "verkfallsvopn" kallar á óvita sem kunna ekki með það að fara, eða róttæka sem kunna með það að fara, það kemur út á eitt. 

Laun starfstétta eru svipuð - hlutfallslega. Verkalýðsfélögin passa upp á að engin stétt stingi af. Það er auðsamið að fá það sama og aðrir - hlutfallslega. En andfélagslegu sósíalistarnir sem yfirtóku Eflingu elska athygli eins og flugræningjar. 

Það kemur að því að álíka andfélagslegir sósíalistar tekst að lama flugið til og frá landinu, ef ekki er farið að öllum kröfum róttækra "flugræningja" í einu og öllu.

Benedikt Halldórsson, 5.5.2020 kl. 09:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband