Flugviskubit, sjálfspíning og valdsýki

Flugviskubit heitir samviskubitið sem lofthitasinni fær þegar hann tekur flugið, segir einn slíkur í samtali við RÚV.

Ein miðstöð lofthitasinna, Guardian, segir að til að bjarga jörðinni verðum við að tortíma kapítalisma. Íslenskt stef sömu hugsunar kemur frá Landvernd sem vill að ríkisstjórnin lýsi yfir neyðarástandi vegna þess að lofthiti á Íslandi gæti orðið sá sami og hann var við landnám. ,,Neyðin" á Íslandi fyrir þúsund árum fólst meðal annars í því að við sigldum til Grænlands og stofnuðum þar nýlendur og einhverjir fáeinir reyndu fyrir sér á Vínlandi. Feðgarnir Eiríkur og Leifur þjáðust ábyggilega af siglviskubiti enda þurfti að fella tré til að smíða knörr.  

Félagssálfræði lofthitasinna tekur á sig æ skýrari mynd. Þeir eru þjakaðir af sjálfspíningu og valdsýki. Söguleg hliðstæða er til dæmis Girolamo Savonarola sem bannaði gleði og sagði fólki að skammast sín fyrir tilveruna. Savonarola var menntamaður sem vissi upp á hár hvernig menn ættu að haga sér. Um tíma fékk hann fylgi og völd. Til lengdar þraut almenning þolinmæðina og gerði brennu úr kappanum.

Sjálfspíning og valdsýki haldast oft í hendur sökum þess að fólki sem ekki líður vel í eigin skinni getur ekki unnt öðrum bærilegs lífs. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Því stærri sem velmegunarhópurinn er, því meira samviskubitið og því meiri þörf fyrir þjáningarbræður. Kannski liggur það ekki í eðli mannskepnunnar að hafa það  of gott. Þetta er þó ekki algilt, því inn á milli valhoppar bjartsýnisfólk gegnum lífið. Væri verðug verkefni fyrir Kára að gera erfðafræðilega úttekt á þessum tveimur hópum. Ég veit í hvorn hópinn ég fell.

Ragnhildur Kolka, 1.5.2019 kl. 17:10

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

                                                                               Það vantar bara að fá þessa ofvita í settið hjá stóru sjónvarpsrásunum og verja hugmyndir sínar. Hér á landi eru margir sem gætu rifið niður hugarburð þeirra.

Góð grein með laufléttu háði sem sannfærir mig um speki sem María heitin Beinteins sagði svo oft við mig;"það er ekkert nýtt undir sólinni" Bara breitilegt! - Savonarola minnir á það;ég er ekki svona rola! 
 



   

Helga Kristjánsdóttir, 1.5.2019 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband