Logi, ríkisvaldið og WOW

Logi Einarsson formaður Samfylkingar segir að ríkið hafi brugðist rangt við gjaldþroti WOW. Ýmsir vinstri höggva í sama knérunn; ríkið átti að redda málunum.

Ríkið stóð frammi fyrir tveim kostum þegar spurðist af rekstarvandræðum WOW fyrir sex mánuðum. Í fyrsta lagi að grípa í taumana og dæla peningum, beint eða óbeint, í ósjálfbæran rekstur. Í öðru lagi að leyfa hlutum að þróast eftir aðstæðum á markaði. Góðu heilli tók ríkið seinni kostinn.

Ríkisvaldið á ekkert erindi i grjótharðan alþjóðlegan samkeppnisrekstur í flugi. Botnlaus vanþekking Loga og vinstrimanna á atvinnulífinu leiðir þá til þeirrar niðurstöðu að ríkið eigi að eigi að halda gangandi taprekstri einkaaðila.

Logi og félagar halda að ríkisvaldið tryggi lífskjör. En þannig gera kaupin ekki á eyrinni. Nema kannski í Sovétríkjunum sálugu eða Venesúela samtímans. En það eru ekki lífskjör mönnum bjóðandi.  


mbl.is Of mikill mótvindur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Guðmundsson

Þessi maður hefur engan skilning á rekstri. Ég veit ekki hvað hann er að gera á þingi annað en að þvælast fyrir og gaspra um hluti sem hann hefur ekkert vit á.

Eggert Guðmundsson, 30.3.2019 kl. 16:03

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Samkvæmt skoðanakönnunum eykst fylgi Samfylkingar - meðan Logi heldur kjafti. Þegar hann tjáir sig, minnkar fylgið aftur.

Gunnar Heiðarsson, 30.3.2019 kl. 20:33

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Truman sagði þegar McArthur bauð sig fram gegn honum. Látið hann bara tala og tala.Er það ekki eins með Loga Gunnar? 

Halldór Jónsson, 31.3.2019 kl. 06:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband