Morðsiðir, kristnir og múslímskir - og góða fólkið

Af orðum forsætisráðherra Noregs í meðfylgjandi frétt má ráða að þegar hvítur og kristinn drepur múslíma er það öfgahyggja en þegar múslímar drepa hvíta og kristna er það eitthvað annað og betra en öfgahyggja.

Útkoman er þó hin sama; saklaust fólk er drepið við saklausa iðju.

Algeng afsökun góða fólksins fyrir hryðjuverkum múslíma er að morðin séu fylgifiskur fjölmenningar sem við verðum að búa við.

Tvöfeldninni verður ekki logið á góða fólkið - það auglýsir hræsnina sjálft.


mbl.is „Vekur upp sárar minningar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Hvað er það í orðum Solberg sem sýnir að hún geri upp á milli mismunandi tegunda öfgahyggju? Er ekki ágætt að einhver fótur sé fyrir því sem maður staðhæfir? Það sé ekki bara hrein lygi?

Þorsteinn Siglaugsson, 15.3.2019 kl. 10:40

2 Smámynd: Guðmundur Norland

Ég held að þú þurfir að setja upp lesgleraugun, það er ekkert í orðum hennar sem bendir til þess að einhver öfgahyggja sé betri en önnur. Fólk eins og þú sem nýtir öll tækifæri til að frussa út sínum áróðri er óþolandi. 

Guðmundur Norland, 15.3.2019 kl. 10:48

3 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Þorsteinn og Guðmundur, ef þið getið sýnt mér fram á að frú Sólberg hafi hugsað til Breivik þegar hún heyrði um múslímsk hryðjuverk skal ég glaður taka orð mín tilbaka.

Páll Vilhjálmsson, 15.3.2019 kl. 11:28

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þú fullyrðir að hún segi hryðjuverk múslima "annað og betra" en öfgahyggju. Það stendur upp á þig að finna þessari staðhæfingu þinni stað í orðum Solberg. En það getur þú auðvitað ekki, því þetta eru einfaldlega helber ósannindi. Lágkúrulegt að reyna þá að snúa sönnunarbyrðinni við.

Þorsteinn Siglaugsson, 15.3.2019 kl. 11:55

5 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Þegar múslímar fremja hryðjuverk leggur fólk eins og frú Sólberg sig í líma við að tengja ekki á milli öfgahyggju og múslíma. Þegar Breivik-týpa fremur hryðjuverk er öfgahyggjan óðara komin á dagskrá. Hvað veldur?

Páll Vilhjálmsson, 15.3.2019 kl. 12:13

6 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Þú ert kominn ofan í holu. Þá er rétt að hætta að moka.

Þorsteinn Siglaugsson, 15.3.2019 kl. 13:47

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég sé þetta eins og Páll það nefnilega heyrist ekki í þjóðum heims þ.e. er elítunni þegja hvítir og kristnir eru sprengdir upp en svo ætlar allt að verða vitlaust þegar þetta er á hin veginn. Svona sé ég þetta og allir aðrir sem ég þekki nema einn þingmaður hér á landi og er víttur fyrir. 

Valdimar Samúelsson, 15.3.2019 kl. 14:18

8 Smámynd: Jón Ragnarsson

Klikkaðir hægri öfgamenn. Klikkaðir múslima öfgamenn. Þetta eru bara tvær hliðar sama peningnum.

"Algeng afsökun góða fólksins fyrir hryðjuverkum múslíma er að morðin séu fylgifiskur fjölmenningar sem við verðum að búa við."

Þetta er auðvitað bara algjört djöfuls bull.

Jón Ragnarsson, 15.3.2019 kl. 15:21

9 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Eftir eina hryðjuverkaárás múslíma segði borgarstjóri góða fólksins í London að hryðjuverkaárásir væru hluti af borgarlífinu, sjá hlekk að neðan.

https://www.independent.co.uk/news/uk/home-news/sadiq-khan-london-mayor-terrorism-attacks-part-and-parcel-major-cities-new-york-bombing-a7322846.html

Páll Vilhjálmsson, 15.3.2019 kl. 16:21

10 Smámynd: Hörður Þormar

"Skamma stund verður hönd höggi fegin"

Ég er nú orðinn svo gamall að ég man að ég heyrði oft í útvarpsfréttum að breskar og bandarískar herflugvélar hefðu, í hundraða tali, stráð "sprengjumottum" yfir þýskar borgir með þeim afleiðingum að þúsundir eða tugþúsundir saklauss fólks lét lífið á einni nóttu, auk allra þeirra sem urðu örkumla alla ævi.

Ég man að margir létu sér fátt um finnast að heyra svona fréttir, "bölvaður þýskarinn ætti þetta bara skilið". Kannski hugsaði maður svona sjálfur, Facebook var þá ekki komin, sem betur fer.

Löngu síðar bárust fréttir af því að múslimar víða um heim, þ.á m. á Norðurlöndum, hefðu dansað af kæti, þegar Tvíburaturnarnir hrundu.

Voðaverk eru ældrei fagnaðarefni, enda veit enginn hverjar verða afleiðingarnar af þeim.

Menn ættu að draga andann a.m.k. tvisvar, en hlaupi ekki strax í tölvuna, í hugaræsingi, og skrifi einhverja vitleysu sem þeir sjá eftir, kannski alla ævi.

Hörður Þormar, 15.3.2019 kl. 17:28

11 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Spenntur að sjá hvort einhver finni hjá sér að hefna þessara voðaverka með öðrum voðaverkum og hvernig það verður svo túlkað.

Ef þessir fabjánar þarna í Ástralíu halda að þeir hvafi skaðað innflytjendur og múslimi þá hafa þeir aldeilis feilreiknað sig. Þetta mun hafa þveröfug áhrif.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.3.2019 kl. 18:20

12 Smámynd: Hörður Þormar

Það er ekki spurning, hefndin vofir yfir.

Hörður Þormar, 15.3.2019 kl. 18:56

13 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eg hélt að svona mál væru ekki á forræði kennara að ákveða. Menntamálaráðuneytið hlýtur að hafa eitthvað um það að segja ef kennarar ætla sér að rjúfa skólaskylduna og æsa börn til að mótmæla og skrópa í einhverju prívat aktívisma og egótrippi kennaranna. 

Kannski eitthver vökult foreldri vogi sér að kæra þetta dómadagsrugl til ráðuneytisins. 

Jón Steinar Ragnarsson, 15.3.2019 kl. 19:27

14 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta síðasta komment fór í vitlausan stað.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.3.2019 kl. 19:29

15 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er ýmislegt sem mis(ó)vitrir reyna að ljúga upp á þá sem þeir kalla "góða fólkið", enda virðist rökræðulistin á þessum bænum gjarna felast um að leggja fólki orð í munn.

Kannski er andstæðan ekki "góða fólkið" vs "vonda fólkið", heldur bærilega skynsamt og velviljað fólk vs. bitur og óheiðarleg idjót. Það skyldi þó aldrei vera?

Þorsteinn Siglaugsson, 15.3.2019 kl. 20:32

16 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég sé ekki betur en að Solberg hafi nefnt "öfgahyggju af öllu tagi" án þess að undanskilja neitt.. 

Ómar Ragnarsson, 15.3.2019 kl. 21:05

17 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Páll,

"Útkoman er þó hin sama; saklaust fólk er drepið við saklausa iðju." 

Vestræn ríki styðja áfram og endalaust stríðið gegn hryðjuverkum (blóð fyrir olíu og stríð ofan á frið), svo og hérna allt fyrir Bandaríki sama hvað + PLÚS trúa öllu sem birt er í vestrænum fjölmiðlum, nú og án þess að mótmæla þessu áframhaldandi stríði, ekki satt?
KV. 

  Image may contain: text that says 'THOSE MUSLIMS ARE GONNA KILL ME! I DON'T KNOW WHAT WE DID TO PISS THEM OFF BUT TRUMP BETTER SECURE THE BORDER! IRAQ AFGHANISTAN PAKISTAN SOMALIA LIBYA SYRIA YEMEN BOSNIA KOSOVO'

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 15.3.2019 kl. 21:18

18 Smámynd: Óli Jón

Gæsalapprnar gleymdust utan um "góða" fólkið ...

Óli Jón, 16.3.2019 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband