Að búa til tekjur er vinna, Sólveig Anna

Þeir sem stunda atvinnurekstur búa til tekjur, fyrir sjálfa sig og aðra. Og það er vinna að stunda rekstur. Sólveig Anna formaður Eflingar segir

„Tekjurnar hafa ekki runnið í vasa þeir sem vinna vinnuna“

Ferðaþjónustufyrirtæki verða ekki til án vinnu. Maður þarf að vera sósíalisti til að skilja ekki jafn einföld sannindi.

Líklega trúir Sólveig Anna að peningar vaxi á trjánum. 


mbl.is Útreikningar þrætuepli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Mikið þó bölvað fífl er þessi mannaumingi.

Jóhannes Ragnarsson, 25.2.2019 kl. 09:49

2 Smámynd: Richard Þorlákur Úlfarsson

Nei Palli.

Hún heldur ekki að peningarnir vaxi á trjánum.

Það sem hún vill er einungis að þeir sem vinna á gólfinu fái meira í sinn vasa.

Richard Þorlákur Úlfarsson, 25.2.2019 kl. 13:39

3 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Páll veit alveg hvað hann er að segja en segir það samt því það er hans vinna! Honum er borgað fyrir hvern pistil sem inniheldur neikvæð ummæli um Eflingu og VR.

Á sama hátt og hann var ráðinn til að rægja Skúla Mogensen og WOW Air hér síðast liðið haust. Páll er ómerkilegur leigupenni sem ekki er mark takandi á.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 25.2.2019 kl. 15:36

4 Smámynd: Haukur Árnason

Páll, ertu búinn að skoða nýja útspilið frá Axel Hall ofl ?

Marinó G. skrifar:

"Var að reyna að lesa í gegn um kynninguna með tillögum skattahóps stjórnvalda. Því miður er hún svo mikið torf, að hægt er að lesa nánast hvað sem er út úr henni. Ákvað því að glugga í skýrsluna, en hún enn meira torf, fyrir að vera án upphafs og endis.

Margt í þessum tillögum er stórskrítið. Raunar svo skrítið að rétt er að vara við:"

Haukur Árnason, 26.2.2019 kl. 01:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband