Konur mannlegir skildir sósíalista

Með stolti kynna sósíalistar nýjasta vopnið í áróðursstríðinu: láglaunakonum skal fyrst fórnað í skæruverkföllum.

Láglaunakonur í ræstingum verða fyrstar til að missa tekjur sínar í hernaði sósíalista gegn samfélaginu.

Eins og jafnan er mikil reisn yfir aðgerðasinnum í verkó. Varnarlausum konum er att á foraðið til að sýna vald foringjanna yfir vinnumarkaðnum.


mbl.is Verkakonur í verkfall 8. mars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

Þú ert nú ljóti undirróðurspenninn. Skammastu þín ekkert fyrir að ráðast svona gegn verkalýðshreyfingunni sem sannlega hefur skapað þér og þínum tilverugrundvöll til að lifa á.  Þú varst ekki alltaf ómerkilegur leigupenni. Þú varst heiðarlegur vinnuþræll eins og 90% Íslendinga og það var fyrir ósínka baráttu verkalýðsfélaga eins og til dæmis Kennarasambnandssins að launin urðu mannsæmandi.  En menn skulu ekki taka því sem gefnu að þó laun millistéttar séu þolanleg þá er ekki sjálfsagt að svo verði alltaf og án baráttu.

Kynntu þér nú taxta Eflingar https://efling.is/wp-content/uploads/2016/07/Kauptaxtar_mai2015_SA_heimasida_.pdf

og komdu svo segðu hvort þú gætir lifað af því tímakaupi sem fiskvinnslukona fær eftir 5. ára þjálfun!  Það eru heilar 1382.97 kr á tímann

Ekki falla fyrir áróðri SA og Harðar Ægissonar sem eru með ótrúlegar rangfærslur í frétt á visi.is

Þú sem kennari kannt alveg að reikna og veizt að Efling gerir mjög hóflegar kröfur. 37.000 króna hækkun dagvinnulauna á mánuði  Það er eina talan sem verið er að tala um . Allt annað er talnablekking ,lygi og þvæla.

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 22.2.2019 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband