Síðustu dagar ljúfa heimsveldisins - og góða fólksins

Á Netflix er sýnd heimildamynd um síðustu mánuði forsetatíðar Obama. Áherslan er á utanríkismálin. Forsetafólkið, og Obama sjálfur, skokka á milli heimsálfa að bjarga mannkyni að bandarískum hugsjónahætti.

Meðal verkefna eru að bjarga Sýrlendingum frá forseta sínum, Assad; heimsbyggðinni frá veðurfarsbreytingum; miðausturlöndum frá írönskum kjarnorkusprengjum; nígerískum stúlkum frá herskáum múslímum og Evrópu frá Pútín.

Hugsjónafólkið í Washington er vel menntað, pólitískt réttrúað, skarpt í orðræðu en illa tengt veruleikanum sem er óendanlega flóknari en sniðmát bandarískra hugsjóna.

Allt sem staðfestir fordóma hugsjónafólksins fær hástemmda lofræðu, t.d. þegar Samantha Power sendiherra Obama hjá Sameinuðu þjóðunum, kynnist sýndarveruleika sýrlenskra flóttamanna. En, óvart, þá vantaði forsöguna. Sýrland varð flóttamannaland vegna þess að Bandaríkin ákváðu að skipta út forsetanum, Assad. Þá varð fjandinn laus og úr varð nýtt Ríki íslams er lagði undir sig stóra hluta Sýrlands og Írak - þar sem Bandaríkin höfðu áður steypt Hussein af stóli.

Bandaríska hugsjónafólkið þykist vita best hvernig annað fólk á að haga lífi sínu. Það er uppskrift að hörmungum. Trúarmenning múslíma tekur ekki bandarískri leiðsögn. Þjóðirnar sem búa við þessa menningu verða sjálfar að finna sinn takt og hvernig þær vilja haga sínum málum.

Merkel kanslari Þýskalands vill að Bandaríkin haldi hermönnum í Sýrlandi. Henni dettur ekki í hug að bjóða þýska hermenn í staðinn. Síðast þegar Merkel tók stóra utanríkispólitíska ákvörðun, að hleypa milljónum múslíma inn í Þýskalnd, kippti það fótunum undan trúverðugleika hennar. Eins og Obamafólkið vildi Merkel vera ljúflingur í hörðum heimi.

Heimildamyndinni á Netflix lýkur í tárum. Trump nær kjöri sem forseti og góða fólkið grætur tap Clinton, sem átti að halda lífi í heimsmynd Obama.

Ein síðasta ferð Obama er til Grikklands. Heimildamyndin segir ekkert af sjálfskaparvíti Grikkja, sem með aðstoð ljúflinga í Brussel og Frankfurt, færðu gríska efnahagskerfið aftur á steinöld. Grikklandi er aftur hampað sem vöggu lýðræðisins. Þess er ekki getið að fyrir 2500 árum dæmdi gríska lýðræðið gamlan mann til dauða fyrir það að vekja efasemdir hjá góða fólkinu um fullvissuna sem það þóttist búa yfir. Viska er að þekkja sín mörk, voru skilaboð Sókratesar.

Eftir lok kalda stríðsins urðu Bandaríkin ljúfa heimsveldið. Forsetatíð Obama 2008-2016 var háflóðið. Eftirskriftin verður: gott fólk lætur vont af sér leiða - ef það þekkir ekki takmarkanir sínar.

 


mbl.is Varar við heimför Bandaríkjanna frá Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Merkel hefur ekki yfir neinum her að ráða. Allt hennar púður fer í að halda úti lögregluliði til að hafa hemil á innflytjendastraumnum sem hún opnaði á. Þýski herinn er sýndarher. Hann hefur hvorki vopn né tæki til að standa undir nafni. Þegar þýski herinn tekur þátt í aðgerðum á vegum NATO þá er skilyrt að þeir sinni einungis pappírsvinnu. Þetta sleifarlag kemur ekki í veg fyrir að Merkel telur sig geta ákveðið hver eigi að sjá um varnir Þýskalands, heima og að heiman. Það kemur því ekki á óvart að hún sé að skipa fyrir hverjir skuli verja þýsku þjóðina fyrir ÍSIS ógninni.

Þjóðverjar eru dekurdýr og vanþakklát í þokkabót.

Ragnhildur Kolka, 17.2.2019 kl. 11:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband