Múslímaríkiđ og kommúnismi gćrdagsins

Sádí-Arabía er múslímaríki kennt viđ eina fjölskyldu, Sáda. Fyrir utan olíu eru ţekktustu útflutningsvörur Sádí-Arabiu Osama Bin Laden, fjöldamorđingjarnir sem kenndir eru viđ 11. september 2001 og Ríki íslams.

En vegna olíunnar, sem hélt efnahagskerfi vesturlanda í gangi áratugina eftir seinna stríđ, er Sádí-Arabía helsti bandamađurinn í arabalöndunum fyrir botni Miđjarđarhafs.

Múslímaríkiđ er á andlegu og trúarlegu miđaldastigi. Konur eru ađeins skör hćrri en húsdýr og grimmilegar refsingar eru viđhafđar opinberlega - líkt og tíđkađist í Evrópu á miđöldum og í trúarstríđum ţar á eftir ţegar kveikt var í fólki á götum og torgum.

Í stađ ţess ađ vesturlönd ţvoi hendur sínar af miđaldafyrirbćrinu er muliđ undir hatursríkiđ á alţjóđlegum vettvangi. Sádar eru t.d. í forystu mannréttinda á vettvangi Sameinuđu ţjóđanna. Ţađ er ígildi ţess ađ láta barnaníđing sjá um dagheimili.

Nú eru vesturlönd í nokkrum vanda. Ćđstu yfirvöld í Riyadh létu myrđa og búta í sundur mann sem ţeim var ekki ađ skapi, Jamal Khashoggi, og var sá ţó enginn fermingardrengur. Upp komst um strákinn Tuma og vesturlönd rötuđu í siđferđisklemmu.

Er ţá ekki sniđugt ađ drífa sig ađ skapa óvin annan verri en miđaldafyrirbćriđ? Jú, kommúnismi gćrdagsins hlýtur ađ vera svakalega hćttulegur. Í öllu falli má reyna ađ selja óttann auđtrúa fólki og fjölmiđlum.

Vestrćna elítan vill telja okkur trú um ađ brýnast sé efna til ófriđar viđ Rússa. Ţeir voru jú einu sinni kommúnistar og eiga enn kjarnorkuvopn. Kjarnorkuvopnasamkomulag sem var gert međan enn voru Sovétríki er allt í einu orđiđ mál málanna í samskiptum austurs og vesturs. 

Uppsögn samkomulags um kjarnorkuvopn frá 1987 er efnislega merkingarlaus. En uppsögnin yrđi táknrćn yfirlýsing um ađ vesturlönd, sem einu sinni voru kennd viđ kristni, vilja gera Rússland ađ höfuđóvini til ađ halda lífi í múslímaríki sem hatast viđ allt vestrćnt.

Ef ţađ vćri til önnur pláneta ađ búa á myndi mađur tékka út af jörđinni.

 


mbl.is Bretar kaupa ekki skýringar Sádi-Araba
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

"Upp úr sápuvatni sannleikans ţvćr lygin sína ull". Svo er nú ţađ. Skáldiđ ađ pćla. Í himnaríki eru nćgar vistarverur ţar eru ađ öllum líkindum plánetur. Vestrćn ríki vinna ađ ţví ađ útrýma kristni hér á jörđ,međan ţeir heittrúuđu kristnu ţrá ađ tryggja sér farseđilinn til plánetunnar í paradís. Ţar duga ekki full koffort af seđlum!

Helga Kristjánsdóttir, 22.10.2018 kl. 05:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband