Palestínumenn, hryðjuverk og dollarar

Stjórnvöld Palestínu nota bandarískt skattfé til að niðurgreiða hryðjuverk. Palestínumaður sem drepur Ísraela fær peninga frá heimastjórninni. Þetta er opinber stefna og hefur lengi verið. Ef hryðjuverkamaðurinn fellur í árásinni fær fjölskyldan framfærslu frá heimastjórninni.

Nú verður skrúfað fyrir fjármagn til að niðurgreiða hryðjuverk og það kalla Palestínumenn ,,svívirðilega árás".

Hryðjuverk eru líklega eitthvað annað og fallegra en ,,svívirðileg árás."


mbl.is „Þetta er svívirðileg árás“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

"Lög nr. 19 eru ekki dautt blek á blaði heldur virk lög. Framkvæmd þeirra er hjá sérstöku ráðuneyti sem heitir „Palestinian Ministry of Prisoners“ og er áætlað að yfir 500 opinberir starfsmenn sjái um framkvæmd laganna."

Haukur Árnason, 1.9.2018 kl. 17:12

2 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Palestínumönnum, hefur verið haldið í fangelsi af Sameinuðu þjóðunum, og ýmsum öðrum öflum, verði tafarlaust komið fyrir hjá bræðrum sínum, í löndunum, og fái atvinnu, menntum og húsnæði.

Það er búið að eyða miklum fjármunum og mannslífum í þessar fangabúðir og nú notum við alla okkar getu til að búa til farsæla lausn.

Arabar, Islam, hafa sýnt hvernig þeir leysa svona deilu.

Araba löndin ráku alla Gyðinga 860 þúsund frá löndum sínum 1949, og höfðu Gyðingar búið í löndunum í þúsundir ára áður en Islam varð til upp úr 630 eftir Krist.

Gyðingunum, sem voru reknir út úr löndum Islam, var strax komið fyrir í hinum ýmsu löndum og þá einnig Ísrael.

000

Eru þið að segja okkur að The State Department, eða stjórnkerfið í Bandaríkjunum, hafi borgað fyrir að halda vandræðunum við, það er bakstjórnin.

Síðan 1948 hafa löndin í kring um Ísrael, notað svæði Palestínumanna og fjárframlög þjóðanna, sem félagsmálapakka.

Oft hefur verið sagt að flóttamannabúðir Palestínumanna, hafi verið notaðar sem félagsmála pakki fyrir löndin á þessum slóðum, til dæmis vinna og uppihald.

Arafat var til dæmis fæddur í Egiptalandi.

slóð

Einhver reikni út, hvað mörg mannslíf, og marga verðtryggða dollara mælt í nú dollurum, er búið að setja í þá ca. 700 þúsund Palentíska flóttamenn frá 1948, og hvað það hefur kostað á mann. Það að skilja vandamálið er forsenda fyrir lausn á því.

Egilsstaðir, 01.09.2018  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 1.9.2018 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband