Sokkinn kostnaður Rússahaturs - á Íslandi

Obama fráfarandi Bandaríkjaforseti ásamt kaldastríðshaukum eins og John McCain stóðu fyrir stjórnarbyltingu í Úkraínu í félagi við Evrópusambandið. Markmiðið var að koma Úkraínu undir áhrifasvæði Nató-ríkja.

Stjórnarbyltingin 2014 hratt af stað atburðaráðs, borgarastyrjöld og innlimun Krímskaga í Rússland, sem varð tilefni vestrænna viðskiptaþvingana gegn Rússlandi.

Ísland, sem Nató-ríki, var þvingað til að taka þátt og kostaði það okkur mikilvæga útflutningsmarkaði í Rússlandi.

Rússar, vel að merkja, hafa aldrei sýnt okkur annað en vináttu, studdu okkur m.a. í landhelgisdeilunni við Breta.

 


mbl.is Sammála um að sökin sé Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Engin bylting var gerð í Úkraínu. Stjórnin féll og forsetinn lét sig hverfa við svo búið.

Einar Sveinn Hálfdánarson, 16.7.2018 kl. 17:06

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Hann var réttkjörin Rússavinur og ESB og það lið flæmdi hann frá.

Halldór Jónsson, 16.7.2018 kl. 17:32

3 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Halldór, þjófurinn sá að sín biðu réttarhöld fyrir margra milljarða fjárdrátt og að hafa fyrirskipað skotárásina á Maidantorginu. Nú situr hann í skjóli. - Hver skyldi nú veita það?

Einar Sveinn Hálfdánarson, 16.7.2018 kl. 18:10

4 Smámynd: Örn Einar Hansen

Það er miklu betra að hafa þessa "Nasista" við völd í Úkraínu ... sem ganga um með slagorðin "Ukraine for ukrainainas ... ".  Það getur vel verið að þessi orð hljómi betur á "Ukraínsku" en Þýsku ... en ég leifi mér að stylla slíku fólki og aðstandendum þeirra í hóp drullusokka veraldarinnar.

Ukraína gengur út á "olíu" og "gas". Og hafa hótað styrjöld, morðum og öðru "huggulegu" ef ekki gas leiðslan fái áfram að fljóta í gegnum Úkraínu, svo þeir geti fengið ókeypis "stolið" gas í rassvasann.

Eina fólkið sem hafði "hagnað" af MH370, voru Úkraína og Holland.

Örn Einar Hansen, 16.7.2018 kl. 19:12

5 Smámynd: Jónatan Karlsson

Það er sannarlega ánægjulegt að sauð tryggir sjálfstæðismenn á borð við þá Pál og Halldór, auk Bjarne Arnars, sjái svo auðveldlega í gegnum sjónarspil leikstjóranna, Bidens og Merkel í Úkraínu.

Það er auðvitað erfitt og flókið að sjá hver semur og fjármagnar verkið, en um leið grípandi og sorglegt að sjá hve vel sviðsetningin virkar á blá saklausa áheyrendur, eða með öðrum orðum, sauð svartan almúgann, eins og athugasemd Einars Sveins ber nánast spaugilega með sér.

Jónatan Karlsson, 16.7.2018 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband