Trumpsósíalismi

Ítarleg úttekt bandarísku vinstriútgáfunnar The Nation á sigri sósíalistans Alexandriu Ocasio-Cortez í forkosningum demókrata í New York minnist ekki einu orði á að frambjóðandinn taki afstöðu gegn stefnu Trump forseta.

Allt púðrið fer í að útskýra að sigurinn sé á kostnað valdaelítunnar í Demókrataflokknum. Ocasio-Cortez var stuðningsmaður Bernie Sanders sem keppti við Hillary Clinton um að verða forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins.

Ocasio-Cortez sækir fylgi til sömu kjósendahópa og Trump, láglaunafólks og lægri millistéttanna. Menntun og heilbrigðisþjónusta eru ær og kýr Ocasio-Cortez, samkvæmt fréttaskýringu The Nation.

Donald Trump verður seint kenndur við sósíalisma. En hann bæði höfðar til og ræktar sambandið við lágtekjufólk. Tollastríð Trump við Kína og Evrópu er háð í þágu almennra launaþega sem munu njóta minna atvinnuleysis og hærri tekna - það er a.m.k. kenningin.

Frá vinstri setur fólk eins og Bernie Sanders og núna Ocasio-Cortez kröfur á oddinn um betra aðgengi lágtekjuhópa að menntun og heilbrigðisþjónustu. Bandarísku sósíalistarnir nota ekki slagaorð Trump, ,,Make America Great Again", en skjólstæðingarnir eru þeir sömu.

Það er helst í málefnum innflytjenda sem skerst í odda með bandarískum sósíalistum og Trump. Ocasio-Cortez vill afnema ICE, ríkisstofnun á sviði innflytjendamála. En hún mun seint boða óheftan innflytjendastraum til Bandaríkjanna. Það kæmi niður á hagsmunum skjólstæðinganna, sem keppa við innflytjendur um atvinnu og húsnæði.

Trumpsósíalismi er blanda af íhaldssemi og framsækni í þágu milli- og lágtekjuhópa. Stefna af þessu tagi gæti gefið tóninn í bandarískri pólitík næstu árin. Vel að merkja undir öðru nafni. Verði barn í brók fær það kannski heitið ameríkusósíalismi.  


mbl.is Nýliðinn sigraði reynsluboltann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Trump er ekki með nein áform um að þjarma að þeim ríku. Áætlanir hans byggja á að hætta að niðurgreiða neyslu annarra þjóða en láta eigin þjóð njóta ávaxtanna. Eins að leyfa ekki ólöglegum innflytjendum að taka störf frá innfæddum og halda þannig niðri launum allra. 

Var að hlusta á viðtal á BBC frá Tyrklandi, þ.s. kom fram að þótt Tyrkir hafi samúð með landflótta Sýrlendingum og vilji leggja þeim til, þá ætlast þeir líka til að þeir snúi til baka þegar strax og óöldinni lægir. Þeir tala líka um að vegna þess fjölda flóttamanna hafi laun láglaunastarfa líka lækkað.

það var líka athygli vert að Tyrkirnir kæra sig ekki um að siðir og venjur Sýrlendinganna skjóti rótum í Tyrklandi. 

Hvað megum við þá segja?

Ragnhildur Kolka, 27.6.2018 kl. 15:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband