Alþingi niðurlægt 1942 og 2017

Árið 1942 var alþingi niðurlægt með utanþingsstjórn, eins og Stefán Pálsson segir. Niðurlæging þingsins 2017 felst í metfjölda flokka á þingi. 

Í báðum tilvikum getur þingheimur sjálfum sér um kennt. Ósætti lamaði alþingi í aðdraganda utanþingsstjórnarinnar. Kosningarnar í ár stöfuðu af vangetu sjö flokka þingheims að mynda meirihlutastjórn. Þjóðin galt stjórnmálakerfinu rauðan belg fyrir gráan og bætti áttunda stjórnmálaflokknum við óreiðuna á Austurvelli.

Lærdómurinn er sá sami 1942 og 2017; fyrrum aðalandstæðingar taka höndum saman um ríkisstjórn.

Sumt breytist aðeins á yfirborðinu.


mbl.is Hlakkar til að skoða sáttmálann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Þarf ekki að hækka þröskuldinn í 7.8 %. Hlusta ekki á rausið um að þá séu svo margir án þingmanna. Þeim sömu er það bara mátulegt fyrir að sóa atkvæðinu á vomlaus framboð sem allar skoankannanir geta sagt þeim fyrirfram

Halldór Jónsson, 28.11.2017 kl. 22:54

2 Smámynd: Halldór Jónsson

4 flokkar eru yfirdrifið á Alþingi, Allt umfram það er til bölvunar. Þá koma svona týpur eins og Þór Saari og Þráinn Bertelsson.       Komast aldrei ekki neitt fyrir sérvisku sinni.

Halldór Jónsson, 28.11.2017 kl. 22:56

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Stjórnmálaflokkur þarf að vera yfir krístískri stærð til að geta myndað starfhæfa deild, vera flokkur en ekki sérviskupúki eða peningaplokkmaskína reyfara sem eru bara á eftir aurnum fyrir sig.

Halldór Jónsson, 28.11.2017 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband