Alþjóðasamfélagið: sum börn má drepa

Donald Trump skaut 59 stýriflaugum á herflugvöll Sýrlandsstjórnar vegna eiturefnanna sem drápu 70 óbreytta borgara, þar af mörg börn. Alþjóðasamfélagið hvatti Trump áfram og harmaði dauða þeirra saklausu.

Nokkrum dögum síðar varð bílsprengja 126 Sýrlendingum að fjörtjóni. Börn voru í meirihluta látinna. Tilræðismennirnir lokkuðu börnin að sprengjubílnum með sælgæti og snakki.

Og allt í einu var alþjóðasamfélaginu alveg sama um saklausu lífin sem tortímdust. Blaðamaðurinn Robert Fisk spyr í Independent hvað valdi. Þegar stórt er spurt.


mbl.is Enginn vafi á að herinn beitti efnavopnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sveinn Hálfdánarson

Sæll vertu

Gefum okkur að Assad hafi fyrirskipað efnavopnaárás. Hefði, undir þeim kringumstæðum, verið réttlátt að ráðast á heri hans?

Bestu kveðjur.

,

Einar Sveinn Hálfdánarson, 21.4.2017 kl. 21:51

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Fjórar manneskjur eru drepnar í Svíþjóð af brjálæðingi. Heimurinn fer á hvolf og slökkt er á Eifel turninum í minningu þeirra. Fjölmiðlar eru á öðrum endanum. Áttatíu börn eru sprengd í tætlur í Sýrlandi, en lítið er um það fjallað og enn síður slökkt ljós í minningu þeirra. Hræsnin alger. Eiginlega ógeðsleg.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 21.4.2017 kl. 23:07

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Auðvitað er aldrei í lagi að drepa börn vísvitandi og viljandi, hvorki fædd né ófædd. 

 Hér er mynd af meira en full­sköp­uðu 5 mán­aða fóstri. Tíu al­þingismenn úr öllum sjö þingflokkunum töluðu 27. marz um tillögur um að leyfa fósturvíg til loka 22. viku meðgöngu (á um 5 mánaða fóstrum), og ENGINN þeirra sté fram til að verja lífsrétt þeirra! Sbr. hér!

Hér er 13 vikna fóstur, í augljósri mannsmynd:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og 18 vikna stunda þau það (mynd) að sjúga á sér 

þumalfingurinn, en nefndir alþingismenn vilja samt, að læknar fái að drepa þau (enda sé það ekkert minna en "sjálfsákvörðunarréttur konunnar") -- og að þeim sé borgað fyrir það úr ríkissjóði !!!

 

Fóstrið sjálft segði NEI við því, að þetta sé nokkur "sjálfsákvörðunarréttur", enda er fóstrið ekki partur af líkama konunnar, og fóstrið getur verið veikt, meðan móðirin er það ekki, og móðirin veik (eins og elzta dóttir mín er núna) meðan ófætt barn hennar er með hressasta móti, sparkandi af fullum krafti og ekki fjarstýrt til þess úr heilabúi móðurinnar, sem stundum myndi þiggja aðeins meiri hvíld !

 

Mér sýnist að þetta 12 vikna fóstur gæti verið að segja NEI við fósturdeyðingu:

 Hönd fósturs – 12 vikum eftir getnað.

 

En svo mikil er fáfræði heimsins, að jafnvel formaður Samfylkingarinnar lét þá heimsku út úr sér á Alþingi 27. fyrra mánaðar, að "fyrir 12. viku með­göngu er ekk­ert fóstur komið til skjal­anna [sic!]. Þá er um að ræða frumu­klasa [sic!] sem verður að fóstur­vísi, en er ekki orðinn að fóstri." !!!

En: á 56. degi (8 vikna) eru öll líffæri starfandi í mannsfóstri.

65. daga gamalt (rúmlega 9 vikna) getur það kreppt hnefann og gripið um hlut sem strýkst við lófa þess. Það hoppar einnig upp og niður í móðurkviði með samhæfðum hreyfingum.

En formaður Samfylkingarinnar segir: þetta er bara "frumu-klasi" til 12. viku með­göngu! En hvernig fer "frumuklasi" að því að hoppa upp og niður í móðurkjviði með samhæfðum hreyfingum, hr. Logi Einarsson?!

Og farðu nú að koma þér í pontu Alþingis til að biðjast afsökunar á þeirri hraksmánarlegu fáfræði sem þú hélzt þarf fram í áheyrn þjóðarinnar 27. marz sl.!

Jón Valur Jensson, 22.4.2017 kl. 04:07

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Trump vildi víst refsa/fangelsa konur fyrir að láta eyða fóstri. Eða svo sagði hann þegar hann var að ná athygli þar vestra. Það var í kosningabaráttunni. Heyrði hann aldrei minnast á að refsa né fangelsa lækna sem framkvæma fóstureyðinguna? Það gleymist líka alveg í umræðunni að spillt læknakerfi getur þvingað konur í fóstureyðingar? Og refsað þeim svo fyrir verknað þvingandi læknakerfisins? Það eru margar hliðar á hverju máli. Hér er bara einblínt á að kenna konum um og refsa konum? Sádi Arabía hvað?

Hvernig vill Trump refsa þeim sem fyrirskipa valdalausu þrælaherliði að drepa varnarlaus og saklaus börn og fullorðna?

Trump fór í matarboð til Kína, og hefur líklega fengið ofbirtu í augun við a sjá Wall Street nautið staðsett í Kína. Þar var engin lítil kjarkmikil gyllt stelpa sem ógnaði nautinu gyllta, eins og er móti nautinu í USA viðskiptasvikagötunni frægu?

Gyllta nautið í Kína viðskiptaveldinu, virðist stjórna mörgu í heiminum þessa dagana? Eða hvað?

Flest sem Trump hefur sagt og gert eftir þessa Kínaheimsókn er í ósamræmi við það sem hann sagði fyrir þá heimsókn og kosningar? Þessa dagana er ekkert sagt frá að verið að framfylgja dauðarefsingum á föngum í USA á hraðfæribandi. Flýtimeðferð á aftökunum er víst nauðsynleg í þessu "siðmenntaða" stórveldi. Ástæða þess að hraða þurfi aftökunum er sögð sú, að eitrið er að verða útrunnið á dagsetningu! goola: Förste henrettelse gennomfört i Ankansas. Var sagt frá á nrk.no 21.4.2017. Erdogan hvað?

Kann einhver skýringuna á heimsveldisáhrifum Kína nautsins gyllta, á orð og verk USA forseta eftir matarboðið fræga? "Hugguleg" matarboðs stemning eða grimmar fyrirskipanir þarna í Kína!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 22.4.2017 kl. 16:21

5 identicon

Sæll Páll 

Það átti bara ekki að fréttast, að það væru hinir svonefndu hryðjuverkamenn "Hvítir hjálmar" (White Helmet Terroirist) er höfðu staðið fyrir þessu, þar sem málið var að reyna klína þessu á hann Assad.

Western Media Cover-up: Well-Known White Helmet Terrorist Was Present at Rashideen Bus Bombing That Killed 126 Women and Children on April 15, 2017

 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.4.2017 kl. 18:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband