Sjálfsvitundin verður hægripólitík

Til skamms tíma sátu vinstriflokkar einir að pólitík sjálfsvitundarinnar. Hægriflokkar sinntu efnahagsmálum en létu vinstrimönnum eftir sjálfsvitundina. Þjóðfélagshópar eins og hommar, femínistar, bdsm-arar, kattavinir, hassistar, loftslagssinnar, fjölmenningarfólk, landamæraleysingjar og fleiri ræktuðu sjálfsvitundina á vinstripólitískum forsendum.

Yfirheiti sjálfsvitundarstjórnmála er félagslegt frjálslyndi. Sum þjóðríki, t.d. Holland og Svíþjóð, búa að langri hefð félgslegs frjálslyndis.

Frummyndin af Donald Trump, ljóshærði Hollendingurinn Geert Wilders, sem vill banna Kóraninn, helgirit múslíma og loka moskum, gerir það gott í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar þar í landi eftir mánuð. Hann er svo róttækur að Bretar settu bann á heimsókn hans til að halda fyrirlestur.

Fréttamaður BBC heimsótti Holland og komst að því að Wilders væri þegar búinn að vinna kosningarnar. Ástæðan?

Jú, jafnvel andstæðingar Wilders, viðurkenna að kosningarnar snúast um sjálfsvitund hollensku þjóðarinnar. Og það er ekki lítill hópur að virkja, sjálf þjóðin, sem krefst þess að samfélagsleg gildi gangi framar sjálfsvitund jaðarhópa.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það má ekki seinna vera að menn spyrji sig hverjir þeir eru og þá ekki síður hverjir þeir vilja vera.

Ragnhildur Kolka, 14.2.2017 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband