Ekki vera bjáni, Bjarni

Tilboð Bjarna Benediktssonar um þjóðin fái 5 prósent ,,gefins" í þeim bönkum sem þjóðin á 100 prósent er ekkert annað en óskammfeilnar mútur. Bjarni formaður og fjármálaráðherra veit að almenningur vill ekki sjá bankana í höndum einkaframtaksins sem setti þjóðina nærri á hausinn árið 2008.

Einkaframtakið á Íslandi kann einfaldlega ekki að reka banka. Bjarni veit þetta manna best sjálfur, enda gerði hann nýlega athugasemd við spillinguna í kringum sölu Arion á hlutabréfum í Símanum. Þar véluðu bankamenn sem lærðu ekkert af hruninu og eru þess albúnir að setja upp spillingasvikamyllur til að þeir fáu græði á kostnað almennings.

Fari bankakerfi okkar í hendur einkaframtaksins er voðinn vís. Engar vísbendingar eru um að bankafólk hafi lært sína lexíu af útrás og hruni.

Bankar eru ekki eins og hver önnur fyrirtæki. Bankar eru taugakerfi efnahagslífsins. Íslenska ríkið ætti að vera afgerandi í bankaþjónustu, t.d. með eignarhaldi á Íslandsbanka og Landsbanka. Eignarhald ríkisins veitir í senn kjölfestu og aðhald. Einkaframtakið býr til spillingu og óráðsíu - eins og dæmin sanna.


mbl.is Gefi landsmönnum 5% í bönkum ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er vg með einhverja stefnu í þessu máli?

Hvað myndi framsókn gera ef að þeir hefðu 100% fylgi á Alþingi?

Jón Þórhallsson, 24.10.2015 kl. 15:49

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Thessi tillaga formannsins er slík fásinna, ad mann rekur í rogastans. Bjódast til "ad gefa 5%" til theirrra semm eiga nú thegar 100%!? Tjódin á semsagt ad eignast 5% en "Banksterarnir"restina? Heimskulegt ad láta thetta út úr sér á landsfundinum, sem ad thví er virdist af fréttum, hafa meira líkst "Dýrunum í Hálsaskógi" en landsfundi stjórnmálaflokks, sem undirritadur hafi eitt sinn áhuga á ad stydja. Thvílík halelúja samkoma.

Gódar stundir, med kvedju ad sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 24.10.2015 kl. 17:38

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Mér finnst réttast að engar eignatilfærslur verði með Íslandsbanka og Landsbanka á þessu kjörtímabili. Þjóðin verði látin ráða þvi hvort annar bankinn fari í almenningseigu eða ekki .Annaðhvort verði þetta kosningamál eða þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um málið.

Jósef Smári Ásmundsson, 24.10.2015 kl. 19:40

4 Smámynd: Arnór Baldvinsson

Af hverju er ekki hægt að selja þessa banka á almennum markaði þannig að ALLIR hafi jafna aðstöðu til að kaupa hlut?  Það mætti setja reglur um að enginn einn geti átt meira en 1%  eftir ákveðinn tíma í söluferli, t.d. 1 ár.  Þannig yrði um mjög dreift eignarhald að ræða, sem er algjör forsenda þess að þessir bankar falli ekki um leið í sama ruglið og fyrir hrun.  

Kveðja,

Arnór Baldvinsson, 24.10.2015 kl. 20:14

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvað ættu bankamenn svo sem að hafa lært af hruninu,annað en hve auðvelt er að sóla litlar Gunnur og jónana upp úr skónum.- Þau smáu hafa aftur á móti lært að tortryggja allt sem veltist í bönkum bankabréfum og sjóðum. Já hvað með þjóðaratkvæðagreiðslur??

Helga Kristjánsdóttir, 24.10.2015 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband