Ólafur Ragnar er kjölfesta; þurfum 4 ár enn

Ólafur Ragnar Grímsson reyndist kjölfesta lýðveldisins á hrunárum. Erlendis var sótt að okkur, þegar Bretar og Hollendingar með aðstoð ESB, ætluðu sér að fá ábyrgð íslensk almennings á skuldir einkabanka.

Innanlands var sótt að stjórnarskránni af upplausnaröflum á vinstri kanti stjórnmálanna. Samfylking, Vinstri grænir og Björt framtíð voru þess albúin að ganga á milli bols og höfuðs á stjórnskipun lýðveldisins. Í beinu framhaldi hefði skapast varanlegt upplausnarástand.

Ólafur Ragnar Grímsson stóð vaktina með sóma; setti Iceavae-samningana í þjóðaratkvæði, ekki einu sinni heldur tvisvar, og kvað í kútinn vinstri atlöguna að stjórnarskránni.

Ólafur Ragnar er fullorðinn á meðal unglinga. Við þurfum 4 ár enn með hann á Bessastöðum.


mbl.is Tilkynnir um framboð í nýársávarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Satt Páll, við erum ennþá í mútum og ansi ósjálfbjarga án hans.

Eyjólfur Jónsson, 11.10.2015 kl. 14:55

2 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Þú ert svo mikill brandarakall Páll.

Jón Ingi Cæsarsson, 11.10.2015 kl. 17:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband