ESB umsókin + 16.07.09 - 15.07.14 +

ESB-umsókn Samfylkingar og svikulla þingmanna VG var samþykkt með naumum meirihluta á alþingi 16. júlí 2009. Umsóknin átti erfiða daga enda vangefið óhræsi. Hún var endanlega tekin tekin af lífi daginn fyrir fimm ára afmælið. 

Evrópusambandið hætti aðildarviðræðum við Ísland árið 2011, þegar ekki tókst að opna sjávarútvegskafla viðræðnanna. Fyrir kosningarnar 2013 ákvað ríkisstjórn Jóhönnu Sig. að setja viðræðurnar á ís. Samninganefnd Íslands var leyst upp eftir síðustu þingkosningar. Núna lýsir nýr forseti framkvæmdastjórnar ESB að næstu fimm árin verði ekki tekið við nýjum aðildarríkjum.

ESB-sinnar eins og Stefán Ólafsson draga þá ályktun að ESB-umsókn Íslands er dauð og grafin í að minnsta kosti fimm ár. Stefán leggur til að fólk fylgist með því hvert ESB þróist og gefi sér nægan tíma til þess. Betur væri að fleiri ESB-sinnar tækju sér Stefán til fyrirmyndar.

Líkið af ESB-umsókninni liggur fyrir allra augum og rotnar á meðan Ísland er skráð umsóknarríki að ESB. Er til of mikils mælst að ríkisstjórnin husli hræið?


mbl.is ESB stækki ekki næstu fimm árin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það væri mikill léttir ef þetta ágreiningsmál væri tekið út af borðinu. Nóg er nú samt eftir til að deila um.

Ragnhildur Kolka, 16.7.2014 kl. 11:24

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2014 kl. 11:51

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Sammála stöllum mínum.

Helga Kristjánsdóttir, 16.7.2014 kl. 12:38

4 Smámynd: Elle_

Og vangefið óhræsi lýsir þessu, þessu þroskahefta óhræsi.

Elle_, 16.7.2014 kl. 14:15

5 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Það þarf að kasta líki ESB umsóknarinnar á ruslahauga sögunnar til þess að rotna á viðeigandi stað í stað þess að vera á heimasíoðu ESB með stöðu umsóknarríkis.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 16.7.2014 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband