ESB niðurlægt á Krímskaga

Evrópusambandið studdi götuofbeldið sem leiddi til afsagnar löglega kjörins forseta Úkraínu. Evrópusambandið, með stuðningi Bandaríkjanna, fór í kaldastríðsham þegar Rússar tóku málstað forsetans og tryggðu stöðu sína á Krímskaga, sem áður tilheyrði Rússlandi enda íbúarnir yfirgnæfandi rússneskumælandi.

Liam Halligan í Telegraph dregur upp dökka mynd af stöðu Evrópusambandsins gagnvart Rússum. Hann segir hótanir ESB um efnahagslegar refsiaðgerðir skot langt yfir markið og grafi undan pólitískum áhrifum ESB í austurvegi.

Fréttir eru um að samstaða Evrópusambandsins sé að riðlast og yrði það ekki fyrsta sinn sem Brussel brotnar á ögurstundu. Hvort heldur sem er að ESB standi við hótanir sínar um viðskiptaþvinganir eða lúffi á lokametrunum verður sambandið fyrir álitshnekki. ESB beinlínis hvatti til þess að lögmæt stjórnvöld í Úkraínu yrðu flæmd frá völdum og ber þess vegna siðferðilega ábyrgð á eftirleiknum. Úkraína er klofin á milli vestur- og austurhluta og til að halda friðinn þarf að finna jafnvægi sem báðir landshlutarnir geta unað við.

Pútín er ekki með frítt spil gagnvart Úkraínu. Fjöldamótmæli í Moskvu sýna svart á hvítu að rússneskur almenningur ætlar ekki að láta teyma sig út í stríð vegna Úkraínu.

Sáralítil hætta er á að stríð brjótist út í Úkraínu - ekkert annað stórveldi en Rússland á harða hagsmuni að verja á þessum slóðum. Afl Rússa gagnvart Úkraínumönnum er yfirþyrmandi og því munu Úkraínumenn ekki grípa til vopna til að verja Krímskaga.

Deilan um Krímskaga er diplómatískt stríð sem Rússar munu sigra, ekki síst vegna þess að þeir njóta stuðnings Kínverja. Evrópusambandið verður niðurlægt og mun tapa áhrifavaldi í alþjóðastjórnmálum og þó ekki úr háum söðli að detta. Bandaríkjamenn munu sitja hjá enda eru þeir afar smeykir við efnahagslegan mátt Kínverja og spyrja sig hvort nýleg lækkun á kínverska gjaldmiðlinum sé hluti af viðskiptastríði Kína eða þáttur í alþjóðavæðingu hagkerfisins þar austur frá.

Efnahagakerfi Evrópusambandsins stendur á brauðfótum vegna evrunnar, sem gerði jaðarríki álfunnar að bónbjargarfólki. Ef Kínverjar fella gengið sitt til að auka útflutning mun það bitna hart á veikum evru-ríkjum sem glíma við verðhjöðnun og atvinnuleysi upp á 20 til 40 prósent.

Evrópusambandið stendur frammi fyrir tvöfaldri ógn úr austri; pólitískri og efnahagslegri. Evrópusambandi mun lúta í gras, spurningin er aðeins hve stórt tapið verður og hvaða afleiðingar það hefur fyrir samheldni ESB-ríkja.


mbl.is Kosning hafin á Krímskaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er það nokkuð skrítið að Rússar og yfirgnæfandi meirhluti íbúa á Krímskaga sem eru af Rússneskum uppruna og eiga meiri samleið með rússum en ESB kæri sig ekkert um að ESB seilist til áhrifa á Krímskaga sem er hernaðarlega mjög mikilvægur, Rússar eru ekkert búnir að gleyma við hverja þeir börðust í seinni heimsstyrjöld.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 16.3.2014 kl. 14:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband